NBA: Orlando vann upp sextán stiga forskot Boston Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2010 09:00 Rashard Lewis fagnar hér sigurkörfu sinni í nótt. Mynd/AP
Orlando Magic vann 96-94 sigur á Boston Celtics í NBA-deildinni í nótt og Phoenix Suns endaði slæmt gengi sitt með því að vinna góðan sigur á Dallas Mavericks. Bæði lið unnu sig til baka inn í leikina eftir að hafa lent undir. Rashard Lewis skoraði sigurkörfu Orlando Magic 1,3 sekúndum fyrir leikslok og Rasheed Wallace klikkaði síðan fyrir utan þriggja stiga línuna í lokaskoti leiksins. Boston komst mest 16 stigum yfir en Orlando kom til baka. Rashard Lewis var með 23 stig fyrir Orlando og Dwight Howard skoraði 11 af 19 stigum sínum í fjórða leikhlutanum. Ray Allen var með 20 stig hjá Boston. Það voru varamenn Phoenix Suns, Goran Dragic, Jared Dudley og Louis Amundson sem gerðu útslagið þegar liðið vann sig inn í leikinn á móti Dallas Mavericks í lokaleikhlutanum. Þeir félagar skoruðu samanlagt 14 stig í fjórða leikhlutanum og hjálpuðu Phoenix við að vinna leikinn 112-106. Amare Stoudemire skoraði 22 stig en spilaði ekkert í lokaleikhlutanum. Steve Nash var með 19 stig og 11 stoðsendingar en Jason Terry skoraði mest fyrir Dallas eða 19 stig. Dirk Nowitzki skoraði 17 stig en hann lék sinn 884. leik fyrir Dallas og sló með því leikjamet Brad Davis. Chris Bosh var með 27 stig og 15 fráköst í 106-104 sigri Toronto Raptors á New York Knicks. Hedo Turkoglu átti einnig mjög góðan leik og var með 26 stig og 11 fráköst. Jarrett Jack tryggði Toronto sigurinn á báðum endum vallarins, fyrst með því að setja niður tvö víti og svo með að fiska ruðning í síðustu sókn New York. David Lee var með 29 stig og 18 fráköst hjá New York.
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík - Keflavík | Suðurnesjaslagur af bestu gerð Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni Sjá meira