Boston-menn ætla treysta á hinn 39 ára gamla Shaq Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2011 22:45 Shaquille O’Neal. Mynd/AP
Shaquille O’Neal heldur upp á 39 ára afmælið sitt í næstu viku (6. mars) og eftir skipti gærdagsins í NBA-deildinni í körfubolta þá er ljóst að Boston Celtics ætlar að treysta á framgöngu "The Diesel" þegar kemur að því að verja teiginn í komandi úrslitakeppni. „Við verðum að fá Shaq heilan til baka. Ef Shaq mun spila vel þá eru þessi skipti náttúrulega frábær fyrir okkur. Þetta snýst um Shaq og að hann komi sér í gott form. Það verður mjög mikilvægt að koma honum í gírinn fyrir úrslitakeppnina," sagði Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics. Boston lét frá sér tvo miðherja, Kendrick Perkins og Semih Erden, auk þess að missa líka kraftframherjann Luke Harangody og bakverðina Marquis Daniels og Nate Robinson. Í staðinn fékk Boston miðherjann Nenad Krstic og framherjann Jeff Green auk valrétta í nýliðavalinu. „Við verðum bara að sjá til hvernig þetta þróast. Okkur hefur gengið vel þegar Shaq hefur spilað," sagði Rivers en Shaq hefur verið í vandræðum með hásinina sína að undanförnu. Shaquille O’Neal hefur spilað 36 af 56 leikjum liðsins á tímabilinu og Boston hefur unnið 27 þeirra. Shaq er með 9.3 stig og 4,9 fráköst að meðaltali á 20,4 mínútum. Hann var með 12,0 stig og 6,7 fráköst á 23,2 mínútum í leik með Cleveland á síðasta tímabili.
NBA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira