Mike Bibby á leiðinni til Miami Heat? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2011 12:30 Mike Bibby lék aðeins tvo leiki með Wizards. Mynd/AP
Mike Bibby og Washington Wizards gengu frá starfslokasamningi í gærkvöldi og er því leikstjórnandinn laus allra mála frá félaginu. Washington-liðið hafði fengið Bibby frá Atlanta Hawks í skiptum fyrir Kirk Hinrich en fleiri leikmenn voru einnig með í þessum skiptum. Bibby vildi ekki spila með einu lélegasta liði NBA-deildarinnar og fórnaði 6,2 milljónum dollara sem hann átti inni fyrir lokaár samningsins en það gerir um 720 milljónir íslenskra króna. Hann spilaði aðeins tvo leiki með Washington en ætlar nú að leita sér að liði sem á möguleika á að vinna titil. „Þetta kom á óvart," sagði Flip Saunders, þjálfari Washington Wizards. „Þegar þú ert á þessum tímapunkti á ferlinum þá skipta oft aðrir hlutir meira máli en peningar. Við vonum að hans markmið með þessu sé að reyna að verða meistari," sagði Saunders. Bibby hefur verið orðaður við Miami Heat sem vantar tilfinnanlega leikstjórnanda. Bibby er orðinn 32 ára gamall en ætti að getað hjálpað þeim LeBron James og Dwyane Wade í komandi úrslitakeppni. Bibby var með 9,4 stig og 3,6 stoðsendingar að meðaltali á 29,9 mínútum með Atlanta á tímabilinu en frægastur er hann fyrir tíma sinn hjá Sacramento Kings þar sem hann spilaði stórt hlutverk á árunum 2001 til 2008.
NBA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira