Blake Griffin fékk fullt hús í kjörinu á besta nýliðanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. maí 2011 09:15 Blake Griffin með verðlaunin sín. Mynd/AP
Allir 118 blaðamennirnir sem kusu besta nýliðann í NBA-deildinni í körfubolta settu Blake Griffin, leikmann Los Angeles Clippers, í fyrsta sætið. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1990 og aðeins í þriðja skiptið í sögunni sem besti nýliðinn fær fullt hús atkvæða. Síðasti nýliðinn til að fá fullt hús var David Robinson hjá San Antonio Spurs árið 1990 en 1984 fékk Houston-maðurinn Ralph Sampson einnig öll atkvæðin í fyrsta sætið. Griffin, sem er 208 sm og hoppar hærra en þeir flestir, átti frábært tímabil þar sem hann var með 22,5 stig, 12,1 fráköst og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann varð í tólft sæti í deildinni í stigaskori og í fjórða sæti í fráköstum. Griffin var valinn í deildina sumarið 2009 en meiddist illa á hné í síðasta leik Clippers á undirbúningstímabilinu. Hann missti af öllu síðasta tímabili og taldist því vera nýliði í ár. „Þegar ég meiddist þá tók ég þá ákvörðun að koma bara enn betri til baka. Ég varð að bæta mig þótt að ég gæti ekki spilað og gaf mig allan í endurhæfinguna. Það er því afar ánægjulegt að geta tekið við þessum verðlaunum núna," sagði Blake Griffin.
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira