NBA: Fær LeBron að dekka Dirk í úrslitunum? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2011 12:00 Dirk Nowitzki. Mynd/AP
Það styttist nú óðum í að lokaúrslit NBA-deildarinnar hefjist þar sem að Miami Heat mætir Dallas Mavericks. Margir líta á þetta sem einvígi á milli hinna frábæru leikmanna LeBron James og Dirk Nowitzki sem eiga báðir eftir að kynnast því á farsælum ferli að verða NBA-meistari. Fyrsti leikur Miami Heat og Dallas Mavericks fer fram á þriðjudagskvöldið en bæði liðin unnu 4-1 sigur á andstæðingum sínum í úrslitum deildanna og þar fóru þeir LeBron og Dirk á kostum. NBA-spekingarnir hafa verið að velta því fyrir sér hvort að LeBron James fái tækifæri til að reyna að dekka Dirk Nowitzki í þessu einvígi en James fékk mikið lof fyrir að dekka leikstjórnandann Derrick Rose í einvíginu á móti Chicago Bulls sem er reyndar allt öðruvísi leikmaður. „Fólk segir að ég sé góður varnarmaður og hann er besti sóknarmaðurinn hjá þeim. Það er því líklegt að ég fái að reyna mig á honum en annars geri ég bara það sem þarf til að við vinnum. Ef ég þarf að dekka hann allt einvígið þá mun ég gera það," sagði LeBron James. Það má búast við því að Chris Bosh, Joel Anthony og Udonis Haslem verði líka notaðir á Dirk Nowitzki en Þjóðverjinn hefur verið nánast óstöðvandi í úrslitakeppninni með 28,4 stig í leik, 52 prósent skotnýtingu og 93 prósent vítanýtingu. „Þeir eru með mjög gott lið með þrjár súper-stjörnur sem geta allir spilað vörn. Þeir hafa sýnt styrk varnarleiks síns til þessa í úrslitakeppninni og þetta verður mikil áskorun. Vonandi verðum við klárir fyrir hana," sagði Dirk Nowitzki aðspurður um varnarleik Miami.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira