Ekkert hlustað á Kobe þegar Mike Brown var ráðinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2011 09:15 Kobe Bryant. Mynd/AP
Bandarískir fjölmiðlamenn eru að hneykslast á því í dag að forráðamenn Los Angeles Lakers hafi ekkert talað við Kobe Bryant, aðalstjörnu liðsins, áður en þeir réðu Mike Brown, fyrrum þjálfara Cleveland, sem eftirmann Phil Jackson. Brown var ráðinn þjálfari Lakers í nótt og Bryant fékk í framhaldinu sms-skilaboð um að hann væri kominn með nýjan þjálfara. Kobe Bryant er aðalstjarna Lakers og hefur þegar unnið fimm meistaratitla með liðinu. Það hefur verið venjan að risastjörnur NBA-liðanna hafa verið með í málum þegar félögin eru að leita sér að nýjum þjálfurum. Þeir ráða kannski ekki hver tekur við en fá að koma með sína skoðun. Jim Buss, sonur eigandans, er varaforseti Lakers og stjórnar nú öllu hjá félaginu og hann vildi ekkert að Kobe kæmi nálægt því þegar nýr þjálfari var ráðinn. Kobe er víst ekkert alltof spenntur fyrir Mike Brown þótt að hann hafi ekki sagt neitt um það opinberlega en Bryant vildi helst að Brian Shaw, aðstoðarmaður Phil Jackson, fengi tækifæri til að þjálfa Lakers-liðið. Það er því strax komin gjá á milli eiganda, þjálfara og aðalstjörnu Lakers-liðsins og það verður spennandi að sjá hvenær og hvernig hún verður brúuð.
NBA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira