LeBron James bjartsýnn á að það verði NBA-tímabil í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2011 22:15 LeBron James og Dwyane Wade. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James, leikmaður Miami Heat í NBA-körfuboltanum, er enn bjartsýnn á að það verði NBA-tímabil í vetur þótt að margir séu búnir að afskrifa tímabilið. Eigendur og leikmannasamtök deildarinnar eru enn langt frá því að ná samkomulagi um að enda verkfallið. „Ég er að undirbúa mig fyrir tímabilið og ég trúi því að það verði tímabil í NBA-deildinni. Vonandi ná báðir aðilar saman sem fyrst," sagði LeBron James í viðtali við blaðamenn á Taívan. Hann er staddur þar í tveggja daga heimsókn. Leikmenn hafa verið lokaðir úti síðan 1. júlí og í síðustu viku lét Billy Hunter, formaður leikmannasamtakana, hafa það eftir sér að það væri ólíklegt að NBA-tímabilið 2011-12 færi fram. Það væri náttúrulega slæmt fyrir LeBron að missa af komandi tímabili ef hann ætlar að vinna þessa sjö til átta meistaratitla eins og markmiðið var þegar hann gerðist leikmaður Miami Heat í fyrrasumar. LeBron verður 27 ára í árslok og á enn eftir að vinna sinn fyrsta NBA-meistaratitil á ferlinum. Michael Jordan var 28 ára þegar hann varð NBA-meistari í fyrsta sinn árið 1991. Jordan vann á endanum sex meistaratitla með Chicago Bulls liðinu.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira