David Stern: Það er frábært tilboð á borðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2011 15:30 David Stern. Mynd/Nordic Photos/Getty
David Stern, yfirmaður NBA-deildarinnar, setti leikmönnum um helgina afarkosti í deilu sinni við eigendur félaganna en þeir fá aðeins frest til morgundagsins til að samþykkja nýjasta tilboðið. Leikmannsamtökin tóku strax illa í tilboðið og það fór ekki síst illa í þá að vera settir upp að vegg. „Við teljum að það sé frábært tilboð á borðinu og við höfum sagt við leikmennina að það sé komið að úrslitastundu og það eina skynsamlega fyrir alla aðila er að ná samkomulagi. Við verðum að taka tillit til þess sem er að gerast í okkar viðskiptaheimi og að hlutirnir eiga ekki eftir að batna," sagði David Stern í viðtali við ESPN. Í nýjasta tilboði eigendanna fá leikmenn á bilinu 49 til 51 prósent af innkomu félaganna þó að leikmennirnir sjálfir telji það vera nánast ómögulegt að fá meira en 50,2 prósent í þessum nýja samningi. Leikmennirnir voru komnir niður í 51 prósent á laugardaginn og það munar því litlu á milli deiluaðila eftir 132 daga verkfall. Stern gaf það strax út að næsta tilboð eigendanna yrði mun óhagstæðara fyrir leikmenn sem fengju þá aðeins 47 prósent af innkomunni auk þess að lokað yrði á möguleika félaganna til að fara yfir launaþakið.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira