NBA: Nýliðinn Norris Cole sló í gegn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. desember 2011 09:31 Norris Cole í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Norris Cole skoraði 20 stig fyrir Miami, þar af sex á síðustu 90 sekúndunum, er liðið hafði betur gegn Boston Celtics í NBA-deildinni í nótt. Cole hefur heldur betur slegið í gegn hjá stuðningsmönnum Miami en hann skoraði alls fjórtán stig í fjórða leikhlutanum. Þar af þrjár afar mikilvægar körfur á lokakafla leiksins. Þríeykið öfluga var þó á vellinum líka - LeBron James skoraði 26 stig, Dwayne Wade 24 auk þess að gefa átta stoðsendingar, og Chris Bosh var með átján stig. Hjá Boston var Ray Allen stigahæstur með 28 stig en hann hitti vel í leiknum. Rajon Rondo var með 22 stig og tólf stoðsendingar og Keyon Dooling skoraði átján stig. Miami hefur nú unnið báða leiki sína til þessa á leiktíðinni og aðeins verið tvívegis undir í þeim - og það í samtals fjórtán sekúndur. Leikmenn liðsins refsuðu grimmilega fyrir hver einustu mistök sem Boston gerði og ljóst að Miami er til alls líklegt í vetur. LA Lakers lék sinn þriðja leik á jafn mörgum dögum í nótt og vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið mætti Utah Jazz. Lokatölur voru 96-71 en Kobe Bryant var stigahæstur með 26 stig hjá Lakers.Úrslit næturinnar: Atlanta - New Jersey 106-70 Miami - Boston 115-107 Milwaukee - Minnesota 98-95 Portland - Sacramento 101-79 LA Lakers - Utah 96-71
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira