Körfubolti

Óvænt tap hjá TCU

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena í leik með íslenska landsliðinu.
Helena í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm

Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í háskólaliði TCU töpuðu í gær sínum fyrsta leik í deildakepninni á tímabilinu.

TCU er á toppi Mountain West-riðilsins með sex sigra af sjö mögulegum en liðið tapaði í gær fyrir New Mexico, 65-54. Var tapið afar óvænt enda fyrsti sigur New Mexico á tímabilinu.

Helenu var haldið í skefjum í leiknum en hún skoraði alls níu stig og tók fimm fráköst á alls 27 mínútum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×