Á erfitt verk fyrir höndum 9. nóvember 2011 00:00 Lúkas Papademos Setti ströng skilyrði fyrir þátttöku sinni í stjórninni.
Lúkas Papademos verður að öllum líkindum forsætisráðherra nýju bráðabirgðastjórnarinnar í Grikklandi, sem næstu vikurnar þarf að koma í framkvæmd óvinsælum aðhaldsaðgerðum í tengslum við björgunarpakka ESB. Skipun stjórnarinnar er hins vegar ekki lokið, þar sem erfiðlega hefur gengið að manna ráðherrastöðurnar. Papademos er fyrrverandi aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Evrópusambandsins og var áður seðlabankastjóri Grikklands. Samkvæmt grískum fjölmiðlum var Papademos tregur til og gerði ákveðnar kröfur, meðal annars um ráðherraval. Hann vildi einnig tryggja að nýi meirihlutinn stæði þétt að baki sér við þau erfiðu verk sem fram undan eru: „Ég undirritaði inngöngu Grikklands á evrusvæðið og ég ætla ekki að verða sá sem undirritar útgöngu þess.“ Nýja stjórnin verður skipuð tveimur stærstu flokkum Grikklands, sem áratugum saman hafa verið höfuðandstæðingar í grískum stjórnmálum; sósíalistaflokknum Pasok, sem hefur tekist á við afleiðingar efnahagshrunsins, og íhaldsflokknum Nýju lýðræði, sem var við stjórnvölinn þegar fjármál ríkisins fóru úr böndunum.- gb
Fréttir Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira