Shaq á nærbuxunum í beinni á TNT Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2012 23:45
Shaquille O'Neal er óhræddur við að gera grín að sér og öðrum og það breytist ekkert þótt að hann sé orðinn heiðvirður sjónvarpsmaður í umfjöllun TNT um NBA-deildina. Það er nefnilega von á öllu þegar Shaq og Charles Barkley eru saman í sjónvarpssal. Shaquille O'Neal hikaði ekkert við að spranga um á nærbuxunum í beinni á TNT til að standa við sitt eftir eitt af undarlegum veðmálum hans og Barkley. Þeir félagar voru að þræta um það hver væri besti kraftframherjinn í NBA-deildinni þessa stundina í aðdraganda leiks Los Angeles Clippers og Minnesota Timberwolves. Barkley er hrifnari af Kevin Love hjá Minnesota en Shaq er talsmaður Blake Griffin hjá Clippers. Þeir veðjuðu síðan um það að sá leikmaður sem stæði sig verr í umræddum leik myndi kalla á það að talsmaður hans, Shaq eða Barkley, mætti buxnalaus í sjónvarpssal í næstu útgáfu af "Inside the NBA" á TNT. Það var ekki mikill munur á tölfræði leikmannanna í umræddum leik. Love var með 17 stig og 14 fráköst en Griffin var með 21 stig, 10 fráköst og 5 tapaða bolta. Love skoraði samt sigurkörfuna í leiknum og hafði því nauman sigur. Shaq stóð við sitt og hljóp um allt settið á nærbuxunum á milli þess að hann fíflaðist við starfsmenn og aðra í stúdíóinu. Það má sjá myndbrot frá þessu með því að smella hér fyrir ofan.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira