NBA í nótt: Pierce tók fram úr Bird Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. febrúar 2012 09:00 Paul Pierce í leiknum í nótt. Mynd/AP
Paul Pierce er orðinn næst stigahæsti leikmaður Boston Celtics frá upphafi en hann skoraði fimmtán stig þegar að liðið vann Charlotte Bobcats, 94-84, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Pierce tók fram úr sjálfum Larry Bird sem skoraði alls 21.791 stig fyrir Boston á ferlinum. Pierce var nálægt því að ná þrefaldri tvennu í leiknum en hann gaf níu stoðsendingar og tók átta fráköst. John Havlicek er stigahæsti leikmaður Celtic frá upphafi með alls 26.395 stig. Rajon Rondo var með fjórtán stoðsendingar og tíu stig, Kevin Garnett 22 stig og Ray Allen sautján stig. Reggie Williams skoraði 21 stigg fyrir Charlotte sem tapaði sínum tólfta leik í röð. LeBron James skoraði 24 stig fyrir Miami gegn sínu gamla liði, Cleveland, í nótt. Miami vann leikinn nokkuð þægilega, 107-91. Steve Nash tryggði Phoenix sigur gegn Milwaukee, 107-105, með því að setja niður sniðskot þegar fimm sekúndur voru eftir af leiknum. Indiana vann góðan sigur á Utah, 104-99, þar sem Darren Collison var með 25 stig og Danny Granger sextán. Paul Millsap skoraði átján stig fyrir Utah. Þá skoraði Kevin Durant 33 stig í sigri Oklahoma City gegn Golden State, 119-116. Hann tók einnig tíu fráköst og gaf sjö stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Indiana - Utah 104-99 Boston - Charlotte 94-84 Miami - Cleveland 107-91 Milwaukee - Phoenix 105-107 Minnesota - Sacramento 86-84 Oklahoma City - Golden State 116-119
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira