NBA: Létt hjá Lin og félögum | Lakers vann Dallas Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2012 09:00 Mynd/AP
Fjölmargir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en flest liðanna voru að leika sinn síðasta leik fyrir hléið vegna Stjörnuleiksins á sunnudaginn. Jeremy Lin og félagar í New York Knicks unnu auðveldan sigur á Atlanta Hawks, Los Angeles Lakers vann Dallas Mavericks og Oklahoma City Thunder vann ellefta heimasigurinn í röð. Boston Celtics og Philadelphia 76ers fara hinsvegar bæði inn í fríið með fimm töp í röð á bakinu.Jeremy Lin var með 17 stig og 9 stoðsendingar þegar New York Knicks vann Atlanta Hawks auðveldlega 99-82 en Lin hvíldi mestan hluta fjórða leikhlutans. New York var yfir í hálfleik 60-35. Þetta var fyrsti sigur Knicks síðan Carmelo Anthony snéri aftur en sá níundi í ellefu leikjum síðan að Lin fékk tækifærið. Anthony var með 15 stig í leiknum en Jeff Teague skoraði mest fyrir Atlanta eða 16 stig.Andrew Bynum skoraði 19 stig og tók 14 fráköst þegar Los Angeles Lakers vann 96-91 útisigur á meisturum Dallas Mavericks. Pau Gasol skoraði 24 stig og þeir Kobe Bryant og Derek Fisher voru báðir með 15 stig. Dirk Nowitzki var atkvæðamestur hjá Dallas með 25 stig og 12 fráköst.Carlos Boozer var með 20 stig og þeir Derrick Rose og Luol Deng skoruðu báðir 16 stig þegar Chicago Bulls vann Milwaukee Bucks 110-91. Joakim Noah var með þrennu í leiknum þegar hann skorað 13 stig, tók 13 fráköst og gaf 10 stoðsendingar en þetta var fyrsta þrennan hjá miðherja Chicago í 35 ár. Brandon Jennings skoraði 20 stig fyrir Bucks.Mynd/APRussell Westbrook skoraði 31 stig og Kevin Durant var með 28 stig þegar Oklahoma City Thunder vann Boston Celtis 119-104. Þetta var ellefti heimasigur Oklahoma City í röð og sá fjórði í röð í öllum leikjum en Boston fer hinsvegar inn í Stjörnuleiksfríið með fimm töp í röð á bakinu. Paul Pierce og Kevin Garnett skoruðu báðir 23 stig fyrir Boston og Garnett var líka með 13 fráköst. Rajon Rondo tók út leikbann í leiknum.Dwight Howard var með 20 stig og 17 fráköst þegar Orlando Magic vann New Jersey Nets 108-91. Glen Davis var með 16 stig fyrir Orlando sem hefur unnið átta af síðustu ellefu leikjum sínum. Deron Williams var atkvæðamestur hjá Nets með 23 stig, 6 fráköst og 8 stoðsendingar.Luis Scola skoraði 19 stig og tók 10 fráköst þegar Houston Rockets vann Philadelphia 76ers 93-87. Þetta var þriðji sigur Houston í röð en Sixers töpuðu aftur sínum fimmta leik í röð. Nikola Vucevic var með 18 stig fyrir Philadelphia og Thaddeus Young skoraði 15 stig.Mynd/APLuke Ridnour skoraði sigurkörfu Minnesota Timberwolves um leið og flautan gall þegar liðið vann Utah Jazz 100-98. Minnesota kom til baka eftir að hafa verið sextán stigum undir í fjórða leikhlutanum. J.J. Barea skoraði 22 stig og Ridnour var með 17 stig. Paul Millsap skoraði 25 stig fyrir Utah sem tapaði þriðja leiknum í röð.Monta Ellis tryggði Golden State Warriors 106-104 sigur á Phoenix Suns þegar aðeins ein sekúnda var eftir en þetta var fyrsti sigur liðsins í Phoenix síðan 18. mars 2005. Ellis skoraði 26 stig í leiknum, Dorell Wright var með 23 stig og David Lee bætti við 22 stigum. Channing Frye skoraði 22 stig fyrir Phoenix og Marcin Gortat var með 21 stig.Chris Paul var með 36 stig og Blake Griffin skoraði 27 stig þegar Los Angeles Clippers endaði tveggja leikja taphrinu með 103-95 sigri á Denver Nuggets. Griffin var líka með 12 fráköst og Paul gaf 9 stoðsendingar. DeAndre Jordan tók 16 fráköst í leiknum auk 10 stiga. Arron Afflalo skoraði mest fyrir Denver eða 20 stig. Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:Mynd/APToronto Raptors - Detroit Pistons 103-93 Washington Wizards - Sacramento Kings 107-115 Charlotte Bobcats - Indiana Pacers 88-102 Cleveland Cavaliers - New Orleans Hornets 84-89 Oklahoma City Thunder - Boston Celtics 119-104 New Jersey Nets - Orlando Magic 91-108 New York Knicks - Atlanta Hawks 99-82 Chicago Bulls - Milwaukee Bucks 110-91 Houston Rockets - Philadelphia 76ers 93-87 Minnesota Timberwolves - Utah Jazz 100-98 Phoenix Suns - Golden State Warriors 104-106 Dallas Mavericks - Los Angeles Lakers 91-96 Los Angeles Clippers - Denver Nuggets 103-95 Staðan í NBA-deildinni:Á nba.com eða yahoo.com
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni Sjá meira