Dwight Howard: Ég vil klára tímabilið með Orlando Magic Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2012 17:30 Dwight Howard. Mynd/AP
Dwight Howard, miðherji Orlando Magic í NBA-deildinni, hefur verið á leiðinni frá liðinu allt þetta tímabil enda er samningur hans að renna út í sumar og því síðasti möguleiki fyrir Orlando Magic að fá eitthvað fyrir hann. Fresturinn til að skipta á leikmönnum á þessu NBA-tímabili rennur út á morgun en Dwight Howard gaf það út í gær að hann vilji klára tímabilið með Orlando Magic. „Ég hef í tvær til þrjár vikur verið að segja þeim sem ráða hjá Magic að ég vilji klára tímabilið með þeim," sagði Dwight Howard eftir sigurleik á stórstjörnuliði Miami Heat í nótt. Howard var með 24 stig og 25 fráköst í leiknum. „Ég sagði þeim að við eigum góða möguleika á að vinna titilinn og ég vil hjálpa til að koma með meistaratitilnn til Orlando. Ég bað þá um að gefa mér það tækifæri," sagði Howard. Dwight Howard getur losnað undan síðasta ári samningsins við Orlando Magic sem þýðir að hann gæti samið við hvaða lið sem er í sumar ákveði hann að vera ekki áfram í Orlando. Dwight Howard er að flestum talinn vera besti miðherji NBA-deildarinnar. Hann er með 21,2 stig, 15,2 fráköst og 2,2 varin skot að meðaltali í leik í NBA-deildinni í vetur. Howard hefur verið kosinn besti varnarmaður NBA-deildarinnar undanfarin þrjú tímabil.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira