NBA í nótt: Durant og Westbrook með 78 stig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. apríl 2012 10:03 Kevin Durant í leiknum í nótt. Mynd/AP
Oklahoma City, efsta lið Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta, vann enn einn sigurinn þegar liðið mætti Minnesota í nótt. Kevin Durant skoraði 43 stig og Russell Westbrook bætti við 35 stigum auk þess að gefa átta stoðsendingar þegar að Oklahoma City vann fimm stiga sigur, 115-110. Durant skoraði sextán stig á síðustu sjö mínútum leiksins fyrir Oklahoma sem hefur unnið 44 af 60 leikjum sínum á tímabilinu. Minnesota var að tapa sínum níunda leik í röð en Anthony Randholph var stigahæstur í liðinu með 22 stig og ellefu fráköst. San Antonio vantar tvo sigra upp á að jafna Oklahoma City en liðið hafði í nótt betur gegn Phoenix, 105-91. Phoenix er sem stendur í níunda sæti Vesturdeildarinnar og á því harða baráttu fyrir höndum um sæti í úrslitakeppninni. Tim Duncan var með nítján stig og tíu fráköst og Tony Parker fjórtán. Með sigrinum tryggði San Antonio sér öruggt sæti í úrslitakeppninni. LA Clippers vann Golden State, 112-104. Chris Paul var með 28 stig og þrettán fráköst en Blake Griffin 20 stig. Clippers er í fjórða sæti Vesturdeildarinnar og anda ofan í hálsmál granna sinna í Lakers sem er í þriðja sætinu. Í Austurdeildinni náði Boston að komast aftur á sigurbraut þegar að liðið mætti New Jersey og vann, 94-82. Avery Bradley setti niður þrjú þriggja stiga skot í röð og skoraði ellefu stig í þriðja leikhluta, þegar Boston gerði út um leikinn. Boston er í fjórða sæti deildarinnar en bæði Atlanta og Orlando eru skammt undan.Úrslit næturinnar: LA Clippers - Golden State 112-104 Washington - Cleveland 89-98 New Jersey - Boston 82-94 Memphis - Utah 103-98 Minnesota - Oklahoma City 110-115 Milwaukee - Indiana 99-105 San Antonio - Phoenix 105-91
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira