NBA í nótt: Lakers vann án Kobe | Utah stöðvaði San Antonio Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. apríl 2012 09:01 Pau Gasol í leiknum í nótt. Mynd/AP
Kobe Bryant missti af sínum öðrum leik í röð með LA Lakers en liðið vann engu að síður sigur á New Orleans á útivelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 93-91. Pau Gasol skoraði 25 stig fyrir Lakers og tók þar að auki níu fráköst. Ramon Sessions gekk ágætlega að fylla í skarð Bryant en hann skoraði sautján stig í leiknum og mikilvæga þriggja stiga körfu þegar skammt var til leiksloka. Lakers hafði tapað síðustu tveimur leikjum sínum og var mest átta stigum undir í fjórða leikhluta. En liðið náði að vinna sigur með góðum lokaspretti. Carl Landry skoraði 20 stig og tók ellefu fráköst fyrir New Orleans. Marco Belinelli var einnig með 20 stig. Memphis vann LA Clippers, 94-85, og þar með sinn áttunda sigur í síðustu tíu leikjum sínum. Marc Gasol var með átján stig fyrir Memphis og Rudy Gay sextán. Hjá Clippers var Chris Paul stigahæstur með 21 stig en Blake Griffin kom næstur með nítján stig. Utah vann San Antonio, 91-84. Devin Harris skoraði 25 stig, þar af ellefu í röð í fjóðra leikhluta. San Antonio hafði unnið ellefu leiki í röð. Gregg Popovich, þjálfari San Antonio, ákvað að hvíla þá Tim Duncan, Tony Parker og Manu Ginobili í leiknum. Það hafði sitt að segja. Utah er í tíunda sæti Vesturdeildarinnar en er ekki langt frá áttunda sætinu. Þar situr Denver nú.Úrslit næturinnar: Charlotte - Washington 85-113 Orlando - Detroit 119-89 Indiana - Toronto 103-98 Milwaukee - Oklahoma 89-109 Memphis - LA Clippers 94-85 New Orleans - LA Lakers 91-93 Minnesota - Phoenix 90-114 Denver - Golden State 123-84 Utah - San Antonio 91-84 Portland - Houston 89-94
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira