Meiðsli Rose alvarleg | Missir af úrslitakeppninni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. apríl 2012 09:25 Rose liggur sárþjáður á vellinum. Nordic Photos / Getty
Sigur Chicaco Bulls á Philadelphia 76ers í gær reyndist liðinu dýrkeyptur. Derrick Rose, skærasta stjarna liðsins, meiddist á hné undir lok leiksins og nú er ljóst að hann sleit krossband í hné og missir af úrslitakeppninni. Chicago var tólf stigum yfir og með leikinn í höndum sér þegar Rose keyrði í átt að körfunni. Á leið sinni í sniðskot snerist honum hugur og gaf á samherja áður en hann lendi illa á gólfinu. Öllum varð ljóst að Rose hafði meiðst á hné. Það var þó ekki fyrr en eftir myndatöku á sjúkrahúsi í gærkvöldi að í ljós kom hve alvarleg meiðsli hans væru. Rose sleit krossband í hné og verður frá keppni í lengri tíma. Fjölmiðlar vestanhafs hafa ekki einvörðungu fjallað um meiðsli Rose sem mikinn missi fyrir Bulls. Rætt er um hversu mikill happafengur meiðsli hans séu fyrir LeBron James og félaga í Miami. Að sögn bandarískra fjölmiðla á borð við fréttastofu Yahoo er leið Miami Heat í úrslit NBA-keppninnar greið eftir að Rose meiddist. Miami lagði New York auðveldlega í fyrstu viðureign sinni í úrslitakeppninni í gær. Leikmenn Chicago eru orðnir vanir því að spila án Rose sem hefur glímt við meiðsli í vetur. Fjarvera hans veikir þó liðið til muna og vonbrigðin mikil fyrir Rose og Chicago sem ætluðu sér stóra hluti í vetur.
NBA Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira