LeBron í tveggja manna hóp með Wilt Chamberlain Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2012 19:45 LeBron James. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James átti ekkert venjulegt kvöld í gær þegar Miami Heat tryggði sér oddaleik á móti Boston Celtics með 19 stiga stórsigri í Boston, 98-79, en tap hefði þýtt sumarfrí fyrir James og félaga og aurskriðu af harðri gagnrýni á James sjálfan. LeBron James skoraði 30 stig í fyrri hálfleik og endaði leikinn með 45 stig, 15 fráköst og 5 stoðsendingar en það hefur enginn skorað meira í einum leik í úrslitakeppninni í ár. Það þarf að fara 48 ár aftur í tímann til að finna aðra eins frammistöðu í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og þá eru þær líka upptaldar. LeBron komst nefnilega í tveggja manna hóp með hinum rosalega Wilt Chamberlain. Wilt Chamberlain var með 50 stig, 15 fráköst og 6 stoðsendingar með San Francisco Warriors í sigri á St. Louis Hawks í úrslitakeppninni árið 1964. LeBron James er með 30,8 stig, 9,5 fráköst og 5,3 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni en í einvíginu á móti Boston er hann með 34,0 stig, 10,8 fráköst og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í sex leikjum. Miami þarf nú á öðrum stórleik að halda frá honum í oddaleiknum annað kvöld.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira