Hakeem hjálpaði LeBron síðasta sumar og nú er komið að Amare Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2012 23:30
Heiðurshallarmeðlimurinn og tvöfaldi NBA-meistarinn Hakeem Olajuwon fékk mikið hrós fyrir að taka LeBron James hjá Miami Heat í gegn síðasta sumar þar sem hann gaf James góð ráð í réttum hreyfingum undir körfunni. LeBron James skoraði meira inn í teig í vetur en tímabilin á undan sem átti að flestra mati mikinn þátt í því að hann varð NBA-meistari. Hakeem Olajuwon er kominn með nýtt verkefni í sumar því Amare Stoudemire, framherji New York Knicks, ætlar að fá góð ráð hjá honum og hver veit nema að miðherjinn Tyson Chandler láti líka sjá sig á æfingunum sem fara fram í New York í ágúst. Olajuwon hefur einnig unnið með stórstjörnum eins og Kobe Bryant og Dwight Howard á síðustu árum enda ekki slæmt að leita til mannsins sem Michael Jordan vildi hafa í miðherjastöðunni í besta liði NBA fyrr og síðar. Olajuwon var kallaður draumurinn og ekki á ástæðulausu enda hreyfir sig enginn eins og Hakeem. Hakeem Olajuwon varð NBA-meistari með Houston Rockets 1994 og 1995 og var kosinn besti leikmaður úrslitanna bæði árin. Hann skoraði 21,8 stig, tók 11,1 fráköst og varði 3,1 skot að meðaltali í 1238 leikjum í NBA-deildinni frá 1984 til 2002. Það er hægt að sjá skemmtilegt myndband umferil með því að smella hér fyrir ofan en eins er hægt að sjá tíu flottustu tilþrif hans á ferlinum með því að smella hér.
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grindavík - Keflavík | Suðurnesjaslagur af bestu gerð Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni Sjá meira