Körfubolti

Howard verður ekki klár í undirbúningstímabilið

Hinn nýi leikmaður LA Lakers, Dwight Howard, verður ekki klár í slaginn þegar liðið byrjar undirbúning sinn fyrir veturinn. Hann er enn að jafna sig eftir bakaðgerð.

Lakers segir ekki nákvæmlega ljóst hvenær Howard geti byrjað að æfa en félagið ætlar að gefa honum nægan tíma til þess að jafna sig.

Leikmaðurinn hefur þó sett stenfuna á að vera klár í fyrsta leik sem er 30. október.

Endurhæfing er í fullum gangi hjá leikmanninum og hefur hún gengið vel að sögn LA Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×