NBA í nótt: New York gjörsigraði meistaralið Miami Heat 7. desember 2012 08:30 Leikmenn New York eru á miklu skriði þessa dagana. AP
New York Knicks er á góðri siglingu í NBA deildinni í körfuknattleik. Liðið gjörsigraði meistaralið Miami Heat í nótt, 112-92, á heimavelli Miami. New York landaði sigrinum þrátt fyrir að vera án stigahæsta leikmanns liðsins, Carmelo Anthony sem er meiddur á fingri. New York hefur unnið 14 leiki og tapað 4 á þessari leiktíð og er liðið með besta vinningshlutfallið í deildinni. Raymond Felton skroaði 27 stig fyrir New York sem er það besta sem hann hefur náð á þessu tímabili. New York leikmennirnir voru sjóðheitir fyrir utan þriggja stiga línuna. Alls fóru 18 þriggja stiga skot rétta leið. Þetta er í annað sinn á þessari leiktíð sem Miami tapar gegn New York. Steve Novak skoraði 18 stig fyrir New York, J.R. Smith bætti við 13 líkt og Tyson Chandler. Þetta var fimmti sigur New York í röð. Átta þriggja stiga körfur frá New York í þriðja leikhluta er met á þessu tímabili. LeBron James skoraði 31 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Þetta var annar tapleikur Miami í röð. Dwayne Wade skoraði 13 stig, Chris Bosh skoraði 12. Árangur New York er áhugaverður í ljósi þess að einn besti leikmaður liðsins, framherjinn Amar'e Stoudemire, hefur enn ekki leikið með liðinu á þessari leiktíð en hann er enn að jafna sig eftir meiðsli.Phoenix – Dallas 94-97 Aðeins tveir leikir fóru fram í nótt í NBA deildinni. Í Phoenix skoraði O.J. Mayo 23 stig fyrir Dallas og hann skoraði síðustu stig leiksins 35 sekúndum fyrir leikslok. Þetta var fimmti tapleikur Phoenix í röð. Brandan Wright og Darren Collison skoruðu 16 stig hvor og Chris Kaman bætti við 15. Markieff Morris skoraði 15 stig og tók 17 fráköst fyrir Phoenix. Eigendur Phoenix buðu stuðningsmönnum sínum upp á „tryggingu" í þessum leik – og gátu áhorfendur krafist þess að fá miðana sína endurgreidda ef upplifun þeirra af leiknum var neikvæð eða ekki skemmtileg. Þetta er í fyrsta sinn í sögu NBA sem félag gerir slíkt.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira