Erlent

Sakar Ísraela um þjóðernishreinsanir

Mahmoud Abbas Forseti Palestínustjórnar segir árásir hryðjuverkasveita ísraelskra landtökumanna orðnar daglegt brauð.nordicphotos/AFP
Mahmoud Abbas Forseti Palestínustjórnar segir árásir hryðjuverkasveita ísraelskra landtökumanna orðnar daglegt brauð.nordicphotos/AFP
Þeir Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, stigu báðir í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær.

Abbas ítrekaði ósk Palestínumanna um að sjálfstætt ríki þeirra yrði að veruleika. Fyrir ári fór hann fram á það á þessum sama vettvangi að Sameinuðu þjóðirnar viðurkenndu sjálfstæði Palestínuríkis. Í ræðu sinni í gær sagði hann Palestínumenn eiga í viðræðum við ýmis ríki og stofnanir um að sú viðurkenning verði að veruleika á þessu þingi.

Hann sakaði Ísraela um að stunda þjóðernishreinsanir með því að eyðileggja heimili Palestínumanna, sem landtökumenn hefðu lagt undir sig.

„Undanfarna mánuði hafa árásir hryðjuverkasveita ísraelskra landtökumanna orðið daglegt brauð," sagði Abbas og nefndi að 535 slíkar árásir hefðu verið gerðar á þessu ári. „Þjóðin okkar er orðin að stöðugu skotmarki fyrir mannvíg og misþyrmingar með fullri hlutdeild hernámsliðsins og Ísraelsstjórnar."

Benjamín Netanjahú varði hins vegar drjúgum hluta ræðu sinnar í að vara við þeirri hættu, sem hann telur heimsbyggðinni allri og Ísrael sérstaklega stafa af írönskum stjórnvöldum og kjarnorkuáformum þeirra. Nú séu síðustu forvöð að koma í veg fyrir að Íranar komi sér upp kjarnorkuvopnum.

Stuttu áður en Netanjahú hóf ræðu sína birtust hins vegar upplýsingar úr nýrri skýrslu ísraelska utanríkisráðuneytisins, sem lekið hafði verið til fjölmiðla. Þar kemur fram að alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn Íran séu farnar að bera árangur, og því sé ef til vill skynsamlegra að herða refsiaðgerðirnar frekar en að beita hervaldi.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hófst í byrjun vikunnar og hafa þjóðarleiðtogarnir hver á fætur öðrum stigið þar í ræðustól.

Í gær tók meðal annars til máls Sein Thein, forseti herforingjastjórnarinnar í Búrma, og notaði hann þar tækifærið til að hrósa Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, fyrir lýðræðisbaráttu hennar.

Suu Kyi, sem einnig er stödd í New York þessa dagana, segir hins vegar að Búrma þurfi nú á því að halda að réttarríki verði endurreist í landinu, að öðrum kosti verði raunverulegt lýðræði þar ekki að veruleika.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×