LeBron James er kóngurinn í NBA Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 1. desember 2012 09:00 Stærsta stjarnan í nba-deildinni Lebron James átti einstakt ár með Miami Heat og bandaríska landsliðinu og er langvinsælasti körfuboltamaður heims í dag.nordicphotos/AFP
LeBron James, leikmaður meistaraliðs Miami Heat, er vinsælasti leikmaður NBA-deildarinnar ef marka má sölutölur á keppnistreyjum frá því í apríl á þessu ári fram til dagsins í dag. James var í fjórða sæti á þessum lista í apríl en vinsældir hans hafa aukist eftir að Miami Heat tryggði sér meistaratitilinn sl. vor og James var lykilmaður í bandaríska landsliðinu sem tryggði sér gullverðlaunin á Ólympíuleikunum í London í sumar. James var síðasta vor ennfremur kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar í þriðja sinn á síðustu fjórum leiktíðum. New York Knicks er „heitasta" liðið á þessum lista en keppnistreyjur liðsins hafa ekki verið í efsta sæti sölulistans frá árinu 2004. Þetta er í fyrsta sinn sem Russel Westbrook hjá Oklahoma City Thunder kemst á listann yfir söluhæstu keppnistreyjurnar. Rajon Rondo og Chris Paul fara báðir upp um fjögur sæti og Lakers er eina liðið sem á þrjá leikmenn á topp-15 listanum. Derrick Rose var í efsta sæti listans í apríl. Athygli vekur að vinsældir Jeremy Lin hafa minnkað gríðarlega eftir að hann fór til Houston. Keppnistreyja Lins var í öðru sæti á þessum lista í apríl þegar hann var leikmaður NY Knicks en hann er ekki á topp-15 listanum í dag.
NBA Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grindavík - Keflavík | Suðurnesjaslagur af bestu gerð Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni Sjá meira