NBA í nótt: Enn tapar Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2013 09:00 Kobe Bryant í leiknum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers tapaði í nótt sínum átjánda leik á tímabilinu er liðið mætti Denver á heimavelli. Lokatölur voru 112-105. Lakers hefur nú tapað þremur leikjum í röð og fjórum af síðustu fimm. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir liðið í nótt og Dwight Howard var með fjórtán stig og 26 fráköst. Þetta var fimmti sigur Denver í síðustu sjö leikjum liðsins en Ty Lawson var stigahæstur með 21 stig og skoraði mikilvæga þriggja stiga körfu þegar þrettán sekúndur voru eftir af leiknum. Kobe Bryant setti niður tvo þrista á lokamínútu leiksins en það dugði ekki til. Denver hefur því unnið Lakers tvívegis á síðustu tveimur vikum. Charlotte Bobcats vann sigur á Detroit Pistons, 108-101, í framlengdum leik en þetta var aðeins annar sigur Charlotte í síðasta 21 leik liðsins. Kemba Walker skoraði 20 stig og var með sjö stoðsendingar og þá var Ben Gordon með átján stig. Detroit hafði unnið fjóra leiki í röð en mátti sætta sig við tap í nótt. Þá vann Miami öruggan sigur á Washington, 99-71, þar sem LeBron James skoraði 24 stig. Miami kláraði leikinn með 21-0 spretti á síðustu sjö mínútum leiksins.Úrslit næturinnar: Toronto - Oklahoma City 92-104 Miami - Washington 99-71 Detroit - Charlotte 101-108 Phoenix - Memphis 81-92 LA Lakers - Denver 105-112
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira