Körfubolti

Villanueva fékk þriggja milljóna króna sekt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Charlie Villanueva, framherji Detroit Pistons í NBA-körfuboltanum, hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara eða sem nemur rúmum þremur milljónum króna af forráðamönnum deildarinnar.

Villanueva var vikið af velli fyrir gróft brot á Isaiah Thomas í viðureign Pistons gegn Sacramento Kings aðfaranótt miðvikudags. Brotið átti sér stað undir lok annars leikhluta en Pistons hafði sex stiga sigur.

Brotið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×