Ólafur ráðinn þjálfari Vals Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. janúar 2013 11:53
Vísir fylgdist grannt með þróun mála en bæði Haukar og Valur héldu blaðamannafundi vegna ráðningu þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Fylgst var með fundunum í beinni lýsingu.13.16: Eftir ágætt spjall við Ólaf er fundinum slitið. Það verður nánar sagt frá því sem Ólafur sagði hér á Vísi síðar í dag. Takk fyrir í dag.13.10: Ólafur er staddur í Katar. „Það er eins og að Bandaríkin hafi gleypt þennan menningarheim. Þetta er skyndibitamenning í þriðja veldi, með moskum inn á milli. Ég er að komast í Ólympíuform, er að læra arabísku og spila handbolta líka. Ég mun líka nota tímann fyrir heimkomuna. Þetta er skemmtilegt og gaman að kynnast þessu fólki."13.09: „Það er ekki ætlunin að taka erlenda leikmenn með mér heim. Þetta er að hljóma eins og pólitík. Við erum ekki að eyða pening í vitleysinga að utan. Það tekur tíma en við ætlum að búa til okkar eigið dæmi. Fólk mun finna það þegar það kíkir á æfingar og leiki. "13.06: Valur er í neðsta sæti N1-deildar karla. „Ef við föllum, þá er ég ekkert að fara að banka upp á hjá Patta. Þá lítum við á það sem meira næði fyrir okkur. Ég ætla ekki að halda steikta ræðu um markmið. Bara vakna á hverjum degi og hafa sem minnst bil á milli þess sem maður ætlar sér og gerir. Þá gerast góðir hlutir."13.05: „Við Íslendingar höldum oft, við viljum vera heimsfrægir í einhverju sem við kunnum eitthvað í. Ég ætla að halda mér við það sem ég kann. Ég mun ekki spila með liðinu, það er nóg til fyrir." 13.05: Ólafur svarar. „Af hverju Valur - kíktu bara á styttuna fyrir utan," segir hann. „Ég hef verið með þetta í hausnum í nokkurn tíma. Þegar ég heyrði að Patti væri að hætta þá passaði þetta."13.04: Þá er hringt í Ólaf á Skype. Spurning hvort hann svarar.13.03: Ólafur hafði úr mörgum atvinnutilboðum að velja og eru Valsmenn ánægðir og stoltir með að hann hafi kosið að koma heim á Hlíðarenda.13.02: Ekki er búið að ákveða hver verði aðstoðarþjálfari Ólafs.13.01: Valur tilkynnir formlega um komu tveggja leikmanna, þeirra Nikola Dokic og Orra Freys Gíslasonar.13.00: Ólafur kemur til með að starfa með yngri flokkum félagsins og er sagt að ráðning hans sé hluti af uppbyggingu félagsins til framtíðar.12.59: Formaður handknattleiksdeildar Vals staðfestir að Ólafur taki við þjálfun Vals nú í sumar. Hann fer stuttlega yfir stórglæsilegan feril hans. Þetta er fyrsta starf Ólafs í þjálfun.12.56: Stefnir í fjölmennan blaðamannafund, enda athyglisverð tíðindi. Þess má geta að nýr þjálfari Vals hefur samið við liðið frá 2013 til 2015.12.49: Hér er búið að tengja tölvu við sjónvarpsskjá og allt virðist til reiðu fyrir Skype-samtal.12.47: Við erum nú mætt á Hlíðarenda, í Lollastúkuna. Hér er enginn Ólafur Stefánsson sjáanlegur, enda væntanlega staddur í Katar, en hins vegar er Júlíus Jónasson, fyrrum þjálfari Vals, á staðnum.12.18: Þá er fundinum slitið. Nú tekur við fundurinn hjá Val sem byrjar klukkan 13.00.12.16: Aron Kristjánsson er líka á fundinum. „Félög sem vinna fagmannlega að hlutunum gera svona lagað með góðum fyrirvara. Þetta þekkist vel erlendis og ekkert óeðlilegt að þetta sé svona hér. Nú vinna menn bara fagmannlega að málunum."12.14: „Ég er með breytt lið hjá Val eftir áramót og það er það sem ég hef verið að tuða í allan tímann. Ég lenti í því sama og Júlli Jónasar, leikmenn fóru rétt fyrir tímabilið og svo lofað leikmönnum sem ekki komu. Þetta var pirrandi. En ef einhver getur breytt svona löguðu hjá Val þá er það Óli, ég efast ekki um það."12.13: „Ég fer á æfingu hjá Val í kvöld og þetta truflar mig ekki neitt. Ég hef menntað mig í þessum fræðum og þetta truflar mig ekki neitt. Ég hef komið hreint og beint fram við Val og hef komið fagmannlega fram að öllu leyti. Austurríki og Valur fram að 1. júní og svo Austurríki og Haukar."12.13: Það verður sama þjálfarateymi hjá meistaraflokki Hauka fyrir utan breytinguna á aðalþjálfara.12.12: Patrekur var að staðfesta að Ólafur Stefánsson muni taka við Val.12.12: „Ég er ekki búinn með mitt starf hjá Val og ætla að klára það eins og atvinnumaður. Vissi líka að Óli Stef yrði næsti þjálfari Vals, sem er hið besta mál fyrir handboltann. Ég veit að Aron hefur unnið frábært starf hér og ég tel að þetta sé gott dæmi fyrir alla."12.10: Patrekur gerir þriggja ára samning og hann tekur gildi 1. júní. „Gaman að vera hér," segir Patrekur. „Þetta er sérstakt, þar sem ég er enn þjálfari Vals. Án þess að fara út í smáatriði, þá var lofað ákveðnu í leikmannamálum sem ekki var staðið við. Ég tilkynnti í desember að ég myndi ekki vera áfram og heyrði þá í Haukunum. Þetta er mín atvinna og þegar Haukar hafa samband, með sína stefnu, heillaðist ég strax. Valur er merkilegt og gott félag með flotta stráka sem var gaman að vinna með. En það var gaman að fara inn í næsta tímabil með aðeins tvo leikmenn fasta á samningi."12.08: Formaður handknattleiksdeildar Hauka tekur til máls. „Við erum sannfærðir um að Patrekur sé happafengur fyrir félagið. Hann mun þjálfa meistaraflokk karla og sinna afreksþjálfun fyrir unga leikmenn, sem og einkaþjálfun fyrir alla unga leikmenn sem ætla sér langt í sinni íþrótt."12.07: Hér var boðið upp á ljómandi fína Quiznos-báta. Heldur smátt skornir en við látum okkur hafa það. Þá getur fundurinn hafist.12.01: Þetta tókst. Vísir er kominn á Ásvelli. Hér er allt með rólegasta móti. Og jú, hingað er Patrekur Jóhannesson mættur. Það reynist því rétt sem greint var frá í gær. Fundurinn er ekki byrjaður.11.56: Vísir greindi frá því í gær að Ólafur Stefánsson myndi taka við starfi Patreks hjá Val. Það verður væntanlega staðfest á blaðamannafundi Vals klukkan 13.00. Fundur Hauka byrjar klukkan 12.00.11.54: Það er heilmikill þjálfarakapall sem fór í gang þegar að Aron Kristjánsson tók við íslenska landsliðinu. Hann tilkynnti þá að hann myndi hætta með Hauka eftir núverandi keppnistímabil. Í dag verður væntanlega tilkynnt að Patrekur Jóhannesson muni taka við Haukum í sumar og hætti því með Val í sumar.11.50: Það hefur verið mikið að gera á vaktinni í morgun og Vísir er nú á leið í Hafnarfjörð þar sem Haukar hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 12.00. Vonandi komumst við í tæka tíð.
Olís-deild karla Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fleiri fréttir Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Patrekur hættur eftir dapurt gengi Stjörnunnar Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Epicbet sýni handboltann í leyfisleysi: „Enda ólöglegar síður“ Teitur inn í landsliðið Gísli bjó til meira en þriðjung markanna Haukur magnaður í sigri Löwen Blær skoraði þrjú og lagði upp jöfnunarmarkið KA/Þór sótti sigur gegn Fram og stigalausar Stjörnukonur Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Meistararnir unnu gegn ÍBV og ÍR hafði betur gegn Selfyssingum Sjá meira