NBA: Þrjú töp í röð hjá Clippers - Melo góður í Boston Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2013 09:00 Mynd/Nordic Photos/Getty
Los Angeles Clippers tapaði sínum þriðja leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lá á móti Phoenix Suns. Carmelo Anthony var góður í langþráðum sigri New York Knicks í Boston og DeMar DeRozan skoraði magnaða sigurkörfu fyrir Toronto Raptors í Orlando.Goran Dragic skoraði 19 af 24 stigum sínum í fyrri hálfleik þegar Phoenix Suns vann 93-88 sigur á Los Angeles Clippers. Phoenix hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína undir stjórn Lindsey Hunter. Marcin Gortat skoraði 15 stig fyrir Phoenix og þeir Luis Scola og Markieff Morris voru báðir með 14 stig. Jamal Crawford skoraði mest fyrir Los Angeles Clippers eða 21 stig en þetta var þriðja tap liðsins í röð. Leikstjórnandinn Chris Paul var ekki með og hefur misst af fimm af síðustu sjö leikjum liðsins.Carmelo Anthony skoraði 28 stig þegar New York Knicks vann 89-86 útisigur á Boston Celtics en New York liðið var fyrir leikinn búið að tapa 11 leikjum í röð í Boston. Amar'e Stoudemire var með 15 stig og 9 fráköst á rúmum 20 mínútum, Jason Kidd skoraði 12 stig og Iman Shumpert var með 10 stig. Rajon Rondo var með 23 stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar og Paul Pierce skoraði 22 stig í fimmta tapi Boston liðsins í röð.DeMar DeRozan tryggði Toronto Raptors 97-95 útisigur á Orlando Magic með magnaðri flautukörfu aðþrengdur varnarmönnum Magic-liðsins. DeRozan skoraði 22 stig í leiknum en Amir Johnson var með 21 stig og 10 fráköst. Toronto vann alla fjóra leiki liðanna í vetur. DeMar DeRozan skoraði 14 af 22 stigum sínum í fjórða leikhlutanum þar sem hann hitti úr 7 af 8 skotum sínum. Nikola Vucevic var með 19 stig og 14 fráköst hjá Orlando sem tapaði fjórða leiknum í röð og í fimmtánda sinn í sautján leikjum.Úrslit leikja í NBA-deildinni í nótt: Orlando Magic - Toronto Raptors 95-97 Boston Celtics - New York Knicks 86-89 Phoenix Suns - Los Angeles Clippers 93-88
NBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira