Leiknir Reykjavíkurmeistari eftir sigur á KR | Myndir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. febrúar 2013 21:00 Myndir / Valgarður Gíslason
Leiknir varð í kvöld Reykjavíkurmeistari karla í knattspyrnu eftir sigur á KR-ingum í úrslitaleik, 3-2. Leikurinn var fjörugur eins og tölurnar bera með sér en dómarinn Magnús Þórisson var mikið í sviðsljósinu í kvöld. Atli Sigurjónsson kom KR yfir í lok fyrri hálfleiks eftir undirbúning Gary Martin en Egill Atlason, fyrrum KR-ingur, jafnaði metin fyrir Leikni í upphafi þess síðari. Þá gerðist umdeilt atvik er Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, fékk að líta beint rautt spjald fyrir að brjóta á Ólafi Hrannari Kristjánssyni. Víti var dæmt og kom Hilmar Árni Halldórsson Leiknismönnum yfir. KR-ingar jöfnuðu svo metin úr annarri vítaspyrnu sem var dæmd á Brynjar Hlöðversson fyrir að handleika knöttinn innan teigs. Bjarni Guðjónsson var þar að verki. Allt útlit var fyrir að úrslit leiksins myndu ráðast í vítaspyrnukeppni en þá komust Leiknismenn í hættulega sókn. Henni lauk með því að Sævar Freyr Alexandersson skoraði með föstu skoti úr vítateignum, þar sem hann stóð einn og óvaldaður. Sævar Freyr hafði komið inn á sem varamaður í síðari hálfleik en hann er bróðir Freys Alexanderssonar, annars þjálfara Leiknis. Freyr hafði sjálfur fengið reisupassann hjá Magnúsi dómara fyrir að mótmæla dómgæslu. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Leiknis sem félagið verður Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira