NBA í nótt: 20 sigrar í röð hjá Miami Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. mars 2013 09:05
Miami Heat varð í nótt fjórða liðið í sögu NBA-deildarinnar sem vinnur 20 leiki í röð á sama tímabilinu. Liðið hafði þá betur gegn Philadelphia 76ers á útivelli, 98-94. LeBron James skoraði 27 stig fyrir Miami og Dwayne Wade var með 21 stig. Það var þó spenna í leiknum allt fram á lokamínúturnar er Miami náði að setja niður mikilvæg skot og tryggja sér sigur. Aðeins þrjú lið höfðu náð því að vinna 20 leiki í röð á sama tímabili. Þetta voru LA Lakers sem vann 33 leiki í röð tímabilið 1971-72, Houston Rockets (2007-8) sem vann 22 leiki í röð og Milwaukee Bucks (1970-71) sem vann 20 leiki í röð. Washington Capitols vann einnig 20 leiki í röð árið 1948 en sú sigurganga náði yfir tvö tímabil. Thaddeus Young var stigahæstur hjá Philadelphia með 24 stig auk þess sem hann tók fimmtán fráköst. Atlanta vann LA Lakers, 96-92, þar sem Devin Harris skoraði sautján stig. Það var þó Ivan Johnson sem skoraði körfuna sem tryggði sínum mönnum sigurinn í nótt. Kobe Bryant skoraði 20 stig í þriðja leikhluta og 31 stig alls, en hann nýtti aðeins ellefu af 33 skotum sínum í leiknum. Hann lenti þó illa undir lok leiksins og haltraði af velli, meiddur á ökkla.Úrslit næturinnar: Philadelphia - Miami 94-98 Washington - Milwaukee 106-93 Indiana - Minnesota 107-91 Boston - Toronto 112-88 Atlanta - LA Lakers 96-92 Houston - Phoenix 111-81 Oklahoma City - Utah 110-87 Sacramento - Chicago 121-79 Denver - New York 117-94 LA Clippers - Memphis 85-96 Golden State - Detroit 105-97
NBA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira