NBA í nótt: San Antonio vann uppgjör toppliðanna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. mars 2013 09:00 Nordic Photos / Getty Images
San Antonio styrkti stöðu sína á toppi Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í nótt og New York Knicks skoraði aðeins 63 stig gegn Golden State. San Antonio hafði betur gegn Oklahoma City, 105-93, í uppgjöri efstu tveggja liða Vesturdeildarinnar. Oklahoma City hefði með sigri jafnað árangur San Antonio og komist upp að hlið liðsins á toppnum. Tiago Splitter var stigahæstur í liði San Antonio með 21 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst. Kawhi Leonard var með sautján stig og Danny Green sextán en alls skoruðu varamenn San Antonio 34 stig í leiknum, gegn sextán hjá Oklahoma City. Kevin Durant skoraði 26 stig fyrir Oklahoma City og Russell Westbrook 25. Þetta var sjötta tap liðsins í röð á heimavelli San Antonio en liðið hafði þó unnið fimm leiki í röð í deildinni fyrir leik liðanna í nótt. Tony Parker er frá vegna ökklameiðsla og verður áfram næstu þrjár vikurnar. Það kom þó ekki að sök í nótt. Golden State vann ótrúlegan sigur á New York, 92-63, en liðið fékk síðast svona fá stig á sig í einum leik gegn Milawukee Hawks þann 28. desember árið 1953. Varnarleikur liðsins var frábær, eins og tölurnar bera með sér. Stephen Curry var með 26 stig í leiknum og David Lee 21 en þetta var stærsti sigur Golden State á tímabilinu. Carmelo Anthony spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðsli en náði ekki að koma sínu liði til bjargar. Hann skoraði fjórtán stig fyrir New York í nótt.Úrslit næturinnar: Philadelphia - Brooklyn 106-97 San Antonio - Oklahoma City 105-93 Utah - Detroit 103-90 Phoenix - Denver 93-108 Golden State - New York 92-63
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira