Rændu heimili Bosh en létu NBA-hringinn hans vera Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2013 17:30 Chris Bosh. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chris Bosh, einn af stjörnuleikmönnum NBA-meistara Miami Heat, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu í vikunni þegar hann kom heim úr afmælisveislu sinni. Á meðan veislunni stóð höfðu nefnilega bíræfnir þjófar látið greipar sópa í skartgripasafni heimilisins. Lögreglan í Miami-borg telur að þjófarnir hafi tekið með sér skartgripi að virði 340 þúsund dollara sem gerir um 41 milljón íslenskra króna. Bosh keypti húsið fyrir 12,3 milljónir dollara árið 2010. Það voru engin merki um innbrot á heimilinu en 29 ára afmælisveisla Bosh var vel auglýst þannig að flestir vissu að Bosh-hjónin yrðu ekki heima hjá sér á þessum tíma. Lögreglan telur líka að ræningjarnir hafi þekkt vel til í húsinu. Þjófarnir tóku samt ekki með sér NBA-hringinn hans Chris Bosh sem hann vann með Miami Heat síðasta sumar en þjófarnir létu vera að taka með sér þá skartgripi sem auðvelt væri að rekja til Bosh. Chris Bosh varð 29 ára gamall 24. mars síðastliðinn en gat ekki haldið upp á afmælið sitt fyrr en á miðvikudagskvöldið. Veislan var hin glæsilegasta með Marokkó-eyðumerkurþema en meðal gesta voru LeBron James og Dwyane Wade.
NBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira