LeBron James bestur í NBA í fjórða sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2013 11:45 LeBron James. Mynd/NordicPhotos/Getty
Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í nótt að LeBron James, leikmaður Miami Heat, hafi verið kosinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta á þessu tímabili og nú er eina spennan hvort að hann hafi fengið fullt hús eða ekki. LeBron James er þar með aðeins fimmti leikmaðurinn í sögunni til að vinna þessi verðlaun fjórum sinnum en hinir í klúbbnum eru þeir Kareem Abdul-Jabbar, Michael Jordan, Bill Russell og Wilt Chamberlain. Ekki slæmur félagsskapur þar. Abdul-Jabbar er sá eini sem hefur eins og James náð því tvisvar sinnum að vera kosinn bestur tvö ár í röð. LeBron James er að vinna þessi verðlaun annað árið í röð og í fjórða sinn á fimm árum en hann fær verðlaunin afhent á morgun. Það hefur enginn fengið fullt hús í þessari kosningu blaðamanna sem fjalla um NBA-deildina en sumir spá því að það gæti gerst núna. James átti magnað tímabil með því liði sem náði langbestum árangri í deildarkeppninni. Hann var með 26,8 stig, 8,0 fráköst og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik og hitti úr 56 prósent skota sinna. Miami vann 66 af 82 leikjum og þar á meðal 27 leiki í röð se er önnur lengsta sigurganga í sögu NBA-deildarinnar.
NBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira