NBA: Spurs rústaði Heat og leiðir einvígið 2-1 Stefán Árni Pálsson skrifar 12. júní 2013 07:23
San Antonio Spurs kjöldró Miami Heat, 113-77, í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar. Staðan í einvíginu er nú 2-1 fyrir San Antonio Spurs. Það gekk allt upp hjá heimamönnum í leiknum á sama tíma og ekkert vildi detta fyrir Miami Heat. Leikmenn San Antonio voru magnaðir í leiknum og settu meðal annars met í úrslitum deildarinnar en liðið setti niður 16 þriggja stiga körfur í leiknum. Leikmenn Miami Heat vilja sennilega gleyma þessum leik sem allra fyrst og byrja strax að undirbúa sig fyrir þann næsta sem fer fram á aðfaranótt föstudags í San Antonio. Sigur Spurs er þriðji stærsti sigur liðs í sögu úrslitanna í deildinni. Heimamenn unnu lokaleikhlutann 35-14 og segir það mikið um gang leiksins í síðari hálfleiknum. Liðið vann að lokum 36 stiga sigur á Miami Heat. Dwyane Wade var atkvæðamestur í liði Heat með 16 stig en Lebron James gerði 15. Hjá San Antonio Spurs var það Danny Green sem var með 27 stig og Gary Neal gerði 24 stig, en báðir skoruðu þeir sín stig mikið til úr þriggja stiga skotum. Staðan í einvíginu er því 2-1 fyrir Spurs en fjóra sigra þarf til að verða NBA-meistari. Hér að ofan má sjá þær þriggja stiga körfur sem Spurs setti niður í leiknum, alveg með ólíkindum.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira