Metta World Peace: Lakers-liðið fer alla leið í úrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2013 23:45 Metta World Peace. Mynd/NordicPhotos/Getty
Metta World Peace, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og núverandi leikmaður New York Knicks, hefur trú á sínum gömlu félögum þótt að liðið hafi misst mikið í sumar. Hann spáir því að Lakers vinni Vesturdeildina. Körfuboltaspekingar hafa ekki sömu trú á Lakers-liðinu og flestir efast um að liðið komist hreinlega í úrslitakeppnina. Mörg lið í vesturdeildinni mæta sterkari til leiks og lið eins og New Orleans Pelicans og Minnesota Timberwolves eru komin með miklu meiri reynslu. „Lakers-liðið fer alla leið í úrslitin," sagði Metta World Peace í viðtali á ESPN í New York. „Kobe Bryant verður heill og þeir verða líka með Pau [Gasol]. Svo mun Lakers tryggja sér annan góðan leikmenn eins og þeir gera alltaf," sagði Metta World Peace. „Ég hef mikla trú á þessu Lakers-liði. Kobe mun spila fyrir liðið og Pau mun spila vel," sagði Metta World Peace sem spilaði í fjögur tímabil með Los Angeles Lakers áður en félagið lét hann fara í sumar. Hann varð NBA-meistari með Lakers 2010. Mikil óvissa er í kringum lið Los Angeles Lakers ekki síst þar sem að Kobe Bryant er að koma til baka eftir hásinarslit og þá er liðið enn að jafna sig á því að Dwight Howard stakk af til Houston í sumar. Metta World Peace ætlar sér sjálfur stóra hluti með New York. „Ég hef verið byrjunarliðsmaður í fimmtán ár. Ég hefði getað farið í annað lið ef það skipti öllu fyrir mig að byrja leikina. Ég heyrði frá liðum eins Oklahoma (City) og Clippers en ég er kominn hingað til New York til að verða meistari," sagði Metta World Peace.
NBA Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Sjá meira