Kobe Bryant fékk feitan tékka í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2013 11:45 Kobe Bryant. Mynd/NordicPhotos/Getty
Kobe Bryant er ekki enn farinn að spila með Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta enda að ná sér eftir hásinarslit. Þessi snjalli leikmaður hafði þó ástæðu til að brosa í gær þegar hann fékk risastóra upphæð inn á bankareikning sinn. Kobe Bryant skrifaði undir nýjan samning við Lakers í apríl 2010 þegar hann var á leiðinni að vinna annan meistaratitilinn á tveimur árum. NBA-leikmenn fá vanalega útborgað jafnt og þétt yfir árið en Kobe Bryant er enginn venjulegur leikmaður. Í umræddum samningi hans frá því 2010 var klausa um að Los Angeles Lakers myndi borga honum 24,3 milljónir dollara á einu bretti 1. nóvember 2013. Þetta eru rétt tæplega þrír milljarðar í íslenskum krónum. Skatturinn mun væntanlega taka 55 prósent af þessari upphæð og því fær Kobe líklega bara að komast yfir 11 milljónir dollara en það er svo sem ekkert slæmt að fá 1,3 milljarð íslenskra króna inn á reikninginn sinn á einum og sama deginum. Bryant fær 30 milljónir dollara fyrir allt tímabilið og Lakers mun borga honum restina, 6 milljónir dollara, jafnt og þétt það sem eftir lifir tímabilsins.
NBA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira