NBA í nótt: Portland vann enn einn toppslaginn | Korver jafnaði met Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2013 07:58
Portland styrkti stöðu sína á toppi Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta með góðum sigri á Oklahoma City á heimavelli, 111-104. Alls fóru sjö leikir fram í deildinni í nótt.Portland vann Indiana, efsta lið Austurdeildarinnar, fyrir aðeins tveimur dögum síðan og hefur nú unnið fjórtán af síðustu fimmtán leikjum sínum. Oklahoma City hafði unnið átta leiki í röð fyrir leik næturinnar. LaMarcus Aldridge skoraði 38 stig í leiknum sem er met hjá honum þetta tímabilið. Hann tók þrettán fráköst þar að auki. Kevin Durant var með 33 stig fyrir Oklahoma City. Nicolas Batum var hetja Portland í leiknum en hann setti niður þrist þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum sem nánast tryggði sigurinn.Atlanta vann LA Clippers, 107-97. Kyle Korver jafnaði met í leiknum með því að skora þriggja stiga körfu í sínum 89. leik í röð. Hann jafnaði þar með met Dana Barros sem var orðið átján ára gamalt. Korver skoraði 23 stig í leiknum og setti alls sex þriggja stiga körfur í leiknum í níu tilraunum.Cleveland vann óvæntan sigur á Denver, 98-88, og stöðvaði þar með sjö leikja sigurgöngu síðarnefnda liðsins. Kyrie Irving skoraði 23 stig fyrir Cleveland en Tristan Thompson var með sautján stig og 21 frákast.Indiana vann Utah, 95-86, og kom sér þar með aftur á sigurbraut eftir tapið gegn Portland. Paul George var með nítján stig fyrir Indiana.Úrslit næturinnar: Cleveland - Denver 98-88 Atlanta - LA Clippers 107-97 Houston - Phoenix - 88-97 Milwaukee - Phoenix 88-97 New Orleans - Dallas 97-100 Utah - Indiana 86-95 Minnesota - San Antonio (frestað) Portland - Oklahoma City 111-104
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira