Sektaður um sex milljónir fyrir að leysa skóreimar mótherja sinna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2014 23:30 J.R. Smith, til hægri, er með skrýtinn húmor. Mynd/AP
J.R. Smith, leikmaður New York Knicks, hefur verið í tómu tjóni á þessu tímabili í NBA-deildinni í körfubolta og er nú kominn í fréttirnar fyrir allt annað en góða frammistöðu á vellinum. NBA-deild ákvað að sekta J.R. Smith um 50 þúsund dollara, eða rétt tæpar sex milljónir íslenskra króna, fyrir óíþróttalega framkomu í tveimur leikjum New York Knicks. J.R. Smith var nefnilega tvisvar uppvís að því að reyna að leysa skóreimar mótherja sinna þegar hann stóð við hlið þeirra á vellinum og annar leikmaður var að taka vítaskot. J.R. Smith tókst að leysa skóreimarnar hjá Shawn Marion, framherja Dallas Mavericks og reyndi síðan að leysa skóreimarnar hjá Greg Monroe, leikmanni Detroit Pistons, nokkrum dögum seinna en reyndar án árangurs. J.R. Smith baðst afsökunar á twitter er brotaviljinn var greinilegur því hann fékk aðvörun eftir fyrra atvikið. J.R. Smith er með 11,3 stig að meðaltali í leik á þessu tímabili en hann var með 18,1 stig að meðaltali á síðasta tímabili þegar hann var valinn besti sjötti leikmaður NBA-deildarinnar. Það er hægt að sjá J.R. Smith leysa skóreimar Shawn Marion hér fyrir neðan.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira