Vlade Divac missti föður sinn í bílslysi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2014 16:07 Vlade Divac. Mynd/NordicPhotos/Getty
Vlade Divac, einn frægasti körfuboltamaður Evrópu frá upphafi og fyrrum leikmaður til margra ára í NBA-deildinni, missti föður sinn í bílslysi í Serbíu í dag en auk þess liggur móðir hans stórslösuð á spítala. Hinn 77 ára gamli Milenko Divac lést á spítala eftir að bíll sem hann var farþegi í lenti á staur og velti nokkrum sinnum í framhaldinu. Slysið varð nálægt bænum Cacak í mið Serbíu.Radmila Divac, 72 ára gömul móðir Vlade, liggur illa slösuð á spítala en er ekki í lífshættu. Það var Radmila sem keyrði bílinn samkvæmt fréttum fjölmiðla í Serbíu. Vlade Divac lék í 16 ár í NBA-deildinni með Los Angeles Lakers, Sacramento Kings og Charlotte Hornets. Hann varð bæði heims- og Evrópumeistari með júgóslavneska landsliðinu. Vlade Divac er nú forseti serbnesku Ólympíunefndarinnar. Vlade Divac missti einn besta vin sinn, NBA-leikmanninn Drazen Petrovic, í bílslysi í júní 1993 en þeir voru aðalumfjöllunarefni heimildarmyndarinnar Once Brothers sem fjallaði um hvernig upplausn Júgóslavíu hafði áhrif á vinskap þessara tveggja frábæru leikmanna. Þeir Divac og Petrovic voru frá Serbíu (Divac) og Króatíu (Petrovic) en voru herbergisfélagar með landsliði Júgóslavíu. Það er hægt að sjá umfjöllun um myndina með því að smella hér.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira