Styrktaðilar flýja frá Clippers vegna rasisma eigandans Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. apríl 2014 23:30 Donald Sterling með kærustunni á leik hjá Clippers. Vísir/getty
Donald Sterling, eigandi NBA-liðsins Los Angeles Clippers, er ekki í góðum málum eftir að hann náðist á upptöku níða hörundsdökkt fólk í samræðum við kærustu sína.Slúðurvefmiðillinn TMZ komst yfir upptökuna sem hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum en leikmenn Clippers stóðu fyrir þöglum mótmælum fyrir leik liðsins í gær gegn Golden State Warriors með því að snúa upphitunargöllum sínum öfugt. Sterling vildi að kærastan sín hætti að birta myndir af sér með svörtum mönnum og sérstaklega hætta að bjóða þeim eða koma með þá á leiki liðsins. Hún hafði skömmu áður mætt með Magic Johnson á leik Clippers-liðsins og fór það fyrir brjóstið á Sterling.Fjöldi frægra hörundsdökkra manna í Bandaríkjunum hafa svarað Sterling en þeirra reiðastur var rapparinn SnoopDogg sem sendi Sterling nokkur vel valin orð í gegnum Instagram-síðu sína.Doc Rivers, þjálfari LA Clippers, sem er svartur, er ekki viss um hvort hann vilji þjálfa liðið á næsta ári vegna uppákomunnar en staðan í einvígi liðsins gegn Golden State Warriors er 2-2 og á Clippers í hættu að fara snemma í sumarfrí. Nú hafa flestir af stóru styrktaraðilum Clippers sagt skilið við félagið en þar má nefna fyrirtæki á borð við Red Bull, CarMax, Kia, og Virgin America.Adam Silver, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, tilkynnir á blaðamannafundi á morgun hvað verður gert í málinu en leikmannasamtökin vilja að þetta verði ekki tekið neinum vettlingatökum.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira