Golf

Mickelson fær hjálp með púttin frá Stockton

BVB skrifar
Phil Mickelson.
Phil Mickelson. Vísir/Getty
Phil Mickelson var gríðarlega mistækur á flötunum síðustu helgi í Wells Fargo Meistaramótinu.

Hann púttaði mjög vel suma dagana en skelfilega aðra. Á laugardeginum púttaði hann vel og lék á 63 höggum og var tveimur höggum frá forystu fyrir lokadaginn. Hann lék lokadaginn hinsvegar ekki jafn vel og var á 76 höggum. Hann var með tvö þrípútt og fjórpútt sextándu flötinna úr 9 metra færi.

Eftir þessa skrautlegu frammistöðu á flötunum ætlaði Mickelson að hitta Dave Stockton, sem hjálpar honum með púttin, strax eftir mótið.

„Ég mun hitta hann á morgun og sjá hvort hann geti hjálpað mér að verða stöðugri með pútternum, því ég átti tvo frábæra daga með pútternum og tvö hörmulega“.

Þetta hefur verið frekar dapurt ár hjá Mickelson. Haann hefur ekki endað í top-10 í neinu móti og náði ekki niðurskurðinum í Masters, sem hefur ekki gerst frá því 1997. En hann mun hafa titil að verja í Opna Breska í sumar og hann var jákvæður eftir Wells Fargo Meistaramótið.

„Þetta gekk ekki nógu vel á flötunum, en þetta var fínt mót hjá mér. Ég skemmti mér vel og þetta stefnir í rétta átt“ sagði Mickelson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×