Phil Jackson byrjaður að hreinsa til hjá New York Knicks Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2014 16:45 Phil Jackson. Vísir/Getty
NBA-körfuboltaliðin New York Knicks og Dallas Mavericks hafa komist að samkomulagi um að skipta á sex leikmönnum og það er ljóst að Phil Jackson er byrjaður að hreinsa til í herbúðum Knicks-liðsins. New York Knicks fékk miðherjann Sam Dalembert og bakverðina Jose Calderon, Shane Larkin og Wayne Ellington frá Dallas en í staðinn fara þeir miðherjinn Tyson Chandler og leikstjórnandinn Raymond Felton til Mavericks-liðsins. New York Knicks fékk einnig tvo valrétti frá Dallas í kaupbæti en þeir eru báðir í annarri umferð nýliðavalsins sem fer fram í kvöld. New York Knicks fær því 34. og 51. valrétt í kvöld en sá fyrri gæti skilað félaginu góðum leikmanni samkvæmt heimildum ESPN. Þetta er fyrsta stóra breytingin á leikmannahópi New York Knicks síðan að Phil Jackson tók við stjórninni hjá félaginu en hann var mjög spenntur fyrir að krækja í spænska bakverðinn Jose Calderon sem Jackson finnst smellpassa inn í þríhyrningssóknina. Phil Jackson gerði Chicago Bulls og Los Angeles Lakers ellefu sinnum að NBA-meisturum á sínum tíma en þessi sigursælasti þjálfari allra tíma reynir sig nú í fyrsta sinn við stjórnunarstöðu hjá NBA-liði. Tyson Chandler, sem er orðinn 31 árs gamall, mun því snúa aftur til Dallas Mavericks þar sem hann varð NBA-meistari árið 2011. Chandler hætti hjá Dallas eftir meistaratímabilið og skrifaði undir fjögurra ára samning við New York Knicks sem skilaði honum 60 milljónum dollara.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira