Kyrie Irving fær tíu milljarða næstu fimm árin hjá Cleveland Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. júlí 2014 08:15 Kyrie Irving þarf nú að halda áfram að vinna fyrir kaupinu. vísir/getty
Kyrie Irving, leikstjórnandi Cleveland Cavaliers, verður brátt einn hæstlaunaði leikmaðurinn í NBA-deildinni í körfubolta en hann hefur komist að samkomulagi við liðið um nýjan samning. Irving fær 90 milljónir dala næstu fimm árin eða jafnvirði tíu milljarða íslenskra króna. Hann fær því 18 milljónir dala á ári eða tvo milljarða króna og er því kominn í sama launaflokk og LeBron James. Leikstjórnandinn öflugi, sem valinn var fyrstur í nýliðavalinu 2011, á eitt ár eftir af núgildandi samningi sínum, en hann má ekki skrifa undir nýja samninginn fyrr en 10. júlí þegar leikmannamarkaðurinn opnar. Með þessu er morgunljóst að Cleveland ætlar að byggja nýtt lið í kringum Irving, eins og fastlega var búist við. Liðið fékk fyrsta valrétt í nýliðavalinu aftur í ár og valdi AndrewWiggins sem talinn er geta orðið stjarna í deildinni. Spennandi tímar framundan hjá Cavaliers. Kyrie Irving hefur verið frábær síðan hann mætti í deildina fyrir þremur árum. Hann var kjörinn nýliði ársins 2012 og hefur tvívegis verið valinn í stjörnuliðið. Þá var hann kjörinn besti leikmaður stjörnuleiksins á síðustu leiktíð.I'm here for the long haul Cleveland!!! and I'm ecstatic!! Super excited and blessed to be here and apart of something special.#ClevelandKID— Kyrie Irving (@KyrieIrving) July 1, 2014
NBA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira