Innlent

Sprengisandur í beinni útsendingu: Þingflokksformennirnir sitja fyrir svörum í aðdraganda þingsins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þingflokksformenn flokkanna sex sem fulltrúa eiga á Alþingi, eða staðgenglar þeirra, munu sitja fyrir svörum á Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst venju samkvæmt klukkan 10. Alþingi verður sett á nýjan leik á þriðjudaginn og stór mál á dagskrá þingsins sem fulltrúar flokkanna munu ræða.

Ásmundur Einar Daðason er fulltrúi Framsóknar, Ragnheiður Ríkharðsdóttir stendur vaktina fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Svandís Svavarsdóttir hjá Vinstri grænum mætir, Birgitta Jónsdóttir er fulltrúi Pírata, Helgi Hjörvar kemur frá Samfylkingunni og Róbert Marshall fyrir hönd Bjartrar framtíðar.

Þátturinn í dag verður í beinni sjónvarpsútsendingu frá hljóðveri Bylgjunnar í Skaftahlíð en umsjónarmenn þáttarins eru Fanney Birna Jónsdóttir og Sigurjón Magnús Egilsson. Þáttinn má sjá í spilaranum hér að ofan. Hann hefst sem fyrr segir klukkan tíu og stendur til tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×