Leikir færðir í Pepsi-deildinni og öll 17. umferðin á sama degi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2015 15:57 Kristinn Jónsson og félagar í Breiðabliki verða í beinni á Stöð 2 Sport. Vísir/Anton Brink
Knattspyrnusamband Íslands hefur gert breytingar á 17. umferð Pepsi-deildar karla sem fer fram eftir ellefu daga. Mótanefnd sambandsins hefur samþykkt að seinka þremur leikjum sem áttu að fara fram sunnudaginn 23. ágúst. Leikirnir þrír fara nú allir fram daginn eftir sem þýðir að öll 17. umferðin fer nú fram mánudagskvöldið 24. ágúst næstkomandi. Þetta verður sjötta umferðin í Pepsi-deildinni í sumar sem fer fram á sama degi en það gerðist síðast í 14. umferðinni 5. ágúst sem var fyrsta umferð eftir Verslunarmannahelgi. Leikirnir sem færast aftur um einn dag er leikur Víkings og ÍBV á Víkingsvelli, leikur ÍA og Fjölnis á Norðurálsvellinum á Akranesi og leikur Keflavíkur og KR á Nettóvellinum í Keflavík. Leikir ÍBV, Fjölnis og KR í umferðinni á undan voru allir færðir frá mánudeginum 17. ágúst til fimmtudagsins 20. ágúst vegna bikarúrslitaleik Vals og KR á laugardaginn. Stöð 2 Sport sýnir einn leik í umferðinni sem er leikur íslandsmeistara Stjörnunnar og Breiðabliks sem fer fram klukkan 20.00 og er lokaleikur kvöldsins. Allir hinir leikirnir í 17. umferðinni hefjast annars klukkan 18.00 mánudaginn 24. ágúst. Hörður Magnússon og félagar í Pepsi-mörkunum gera alla umferðina síðan upp í markaþætti sínum strax að lokum leiks Stjörnunnar og Breiðabliks.17. umferð Pepsi-deildar karla: mán. 24. ágúst 18:00 Leiknir R. - FH (Leiknisvöllur) mán. 24. ágúst 18:00 Valur - Fylkir (Laugardalsvöllur) mán. 24. ágúst 18:00 Víkingur R. - ÍBV (Víkingsvöllur) mán. 24. ágúst 18:00 Keflavík - KR (Nettóvöllurinn) mán. 24. ágúst 18:00 ÍA - Fjölnir (Norðurálsvöllurinn) mán. 24. ágúst 20:00 Stjarnan - Breiðablik (Samsung völlurinn)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Líður alltaf yfir hana þegar hún kemur í mark Sport „Hefði séð eftir því alla ævi“ Íslenski boltinn Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Enski boltinn „Mjög sáttur með samninginn“ Íslenski boltinn „Hann ætti bara að skrifa afsökunarbiblíuna“ Körfubolti Rekinn fyrir ummæli sín um krabbameinssjúka handboltagoðsögn Handbolti Rúmar tvær milljónir í boði ef þú finnur hundinn hans Aarons Ramsey Fótbolti Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Enski boltinn Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Enski boltinn Magnús Már í viðræðum við HK Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Tekur við af læriföður sínum Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ „Ég þarf bara að láta verkin tala“ Sjá meira