Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Zvezda 2005 1-3 | Rússarnir unnu Stjörnustríðið í Garðabænum Kristinn Páll Teitsson á Samsung-vellinum skrifar 7. október 2015 22:00 vísir/anton
Rússneska félagið Zvezda vann 3-1 sigur á Stjörnunni í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en Stjörnukonur voru einfaldlega óheppnar að tapa leiknum eftir að hafa fengið færin til að jafna leikinn í seinni hálfleik. Þetta var annað árið í röð sem Stjarnan tók á móti Zvezda, sem þýðir Stjarna á rússnesku, í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en leik liðanna í fyrra lauk með 5-2 sigri Zvezda. Réðu leikmenn Stjörnunnar ekkert við José Nahi, framherja Zvezda, í fyrra en hún skoraði fjögur af mörkum liðsins í leiknum. Líkt og í leik liðanna í fyrra fékk rússneska félagið sannkallaða draumabyrjun en eftir 13 mínútna leik var staðan orðin 2-0 fyrir gestina. Komu mörk Olha Boychenko og Daryna Apanaschenko eftir klaufagang í vörn Stjörnunnar en hæglega hefði verið hægt að koma í veg fyrir þau. Stjörnukonum tókst að minnka muninn á 28. mínútu með marki frá besta leikmanni liðsins í fyrri hálfleik, Rúnu Sif Stefánsdóttir. Fylgdi hún á eftir skoti Hörpu Þorsteinsdóttir sem Iryna Zvarich réð ekki við í marki rússneska liðsins og setti boltann í autt netið. Rússneska liðið bætti við þriðja marki sínu aðeins þremur mínútum síðar og aftur kom markið eftir klaufagang í vörn Stjörnunnar. Fór skot Nahi af varnarmanni og beint fyrir fætur Olesya Kurochkina sem skoraði af stuttu færi. Stjarnan fékk tvö góð færi til að minnka muninn sitt hvoru megin við hálfleikinn en Iryna í marki rússneska liðsins varði með glæsilegum tilþrifum, fyrst frá Poliönu Barbosa Medeiros og síðar frá Hörpu Þorsteinsdóttir. Harpa fékk annað gott tækifæri á 62. mínútu en skalli hennar af meters færi var varinn af Irynu sem reyndist Stjörnukonum erfið í kvöld. Varði hún nokkrum sinnum til viðbótar úr ágætis færum Stjörnukvenna það sem eftir lifði leiks. Rússneska liðið virtist vera sátt með stöðuna en þær sóttu lítið sem ekkert í seinni hálfleik. Var afar óheppilegt að Stjörnukonur hafi ekki bætt við markinu sem þær þurftu og áttu skilið til þess að gera einvígið meira spennandi. Seinni leikur liðanna fer fram í Perm í Rússlandi á fimmtudaginn næstkomandi en það er ljóst að það verður erfitt fyrir lið Stjörnunnar að vinna upp forskotið ytra.Ásgerður var öflug á miðjunni að vanda í kvöld.Vísir/Anton„Við erum ótrúlega svekktar með lokatölur leiksins, að mínu mati vorum við betri aðilinn í leiknum þrátt fyrir að tapa 1-3 á heimavelli,“ sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, svekkt eftir tapið. „Það er grátlegt fyrir jafn reynslumikið lið og við erum með að lenda aftur undir 2-0 á fyrsta korterinu og þetta á einfaldlega ekki að gerast.“ Ásgerður sagði að liðið hefði lagt upp með að stöðva José Nahi í kvöld. „Við ætluðum að liggja aðeins aftar og minnka svæðið fyrir hana til að hlaupa í og mér fannst hún ekki gera neitt í dag. Það opnaði fyrir kantmennina þeirra en við eigum að ráða betur við þetta.“ Ásgerður var óánægð með spilamennsku liðsins í upphafi leiks en liðinu gekk illa að halda bolta og mátti greinilega sjá stress hjá leikmönnum liðsins. „Það er ekki endalaust hægt að skýla sér á bak við taugatrekking. Þetta er þriðja árið í röð sem við keppum í Evrópu og við erum með landsliðsmenn í okkar röðum þannig að við eigum að hrista þetta úr okkur strax.“ Ásgerður sagðist ekki vera búin að gefa upp von um að komast í 16-liða úrslitin. „Við sýndum það í dag að við erum með betra lið en þær og við getum alveg farið til Rússland og unnið þær þar. Við létum markmanninn þeirra líta vel út í dag en hún virðist ekki halda neinum boltum. Við þurfum að vera með meira sjálfstraust fyrir framan markið,“ sagði Ásgerður og bætti við: „Við erum ekki að fara út til þess að fara í skotgrafirnar og halda jafnteflinu. Við ætlum að vinna þennan leik og spila annan leik hér í nóvember.“Anna í baráttunni inn í teignum á Samsung-vellinum í kvöld.Vísir/AntonAnna Björk: Fékk Déjá Vu tilfinningu eftir korter „Þetta var mjög fúlt enda ekki það sem við ætluðum okkur. Við ætluðum ekki að fá á okkur mark heldur að halda hreinu og það var svekkjandi að vera búnar að fá á okkur þrjú mörk á fyrsta hálftímanum,“ sagði Anna Björk Kristjánsdóttir, miðvörður Stjörnunnar, svekkt eftir leikinn. „Þetta var eiginlega allt of líkt byrjun leiksins í fyrra og við ætluðum okkur að gera mun betur. Maður fékk eiginlega bara déjá vu tilfinninguna þegar ég leit á töfluna þegar korter var liðið af leiknum.“ Stjörnuliðinu tókst vel að loka á José Nahi, framherja Zvezda í leiknum en hún skoraði fjögur mörk í leik liðanna í fyrra. „Við tókum eftir því í seinni leiknum í fyrra þar sem hún var ekki með að aðrir leikmenn liðsins stigu upp í fjarveru hennar. Þær gerðu það einnig í kvöld og það þýðir ekkert að taka bara einn leikmann úr umferð í svona leik.“ Þrátt fyrir að vera á heimavelli gekk liði Stjörnunnar illa að halda bolta í upphafi leiks og virtust leikmenn liðsins einfaldlega vera taugatrekktir. „Það var eitthvað stress í hópnum en að mínu mati erum við með nægilega reynslumikla leikmenn til þess að takast á við þetta. Við þurftum að vera kaldar og halda boltanum en við vorum ekki að ná því.“ Stuttu eftir að Rúna Sif minnkaði muninn kom þriðja mark rússneska liðsins en öll mörk gestanna komu eftir klaufagang í varnarlínu Stjörnunnar. „Ég hugsaði þegar við náðum að minnka muninn að við þyrftum að halda markinu hreinu næstu mínúturnar. Við þurfum að verjast betur og vera á tánum og þá fáum við ekki á okkur svona mörk ef við ætlum að komast lengra í þessari keppni.“ Stjarnan fékk færi til þess að minnka muninn en Iryna Zvarich átti stórleik í marki rússneska liðsins. „Við fengum færi í báðum hálfleikjum og stýrðum leiknum allan seinni hálfleikinn þótt þær hafi fengið einhver nokkur færi. Við vorum meira með boltann og vorum að skapa nóg en vorum bara óheppnar að koma ekki inn öðru marki.“ Anna sá fullt af jákvæðum punktum fyrir seinni leik liðanna sem fer fram í Rússlandi í næstu viku. „Við förum út með sjálfstraustið í botni eftir þennan leik þótt að við höfum tapað 3-1 í dag. Við ætlum okkur að sigra og komast áfram, við sáum það í seinni hálfleik að við getum það alveg.“Stjörnukonur fagna hér marki sínu í kvöld.Vísir/antonÓlafur: Getur ekki gefið mörk á þessu stigi keppninnar „Annað árið í röð gefum við þeim ódýr mörk í byrjun en liðið lék vel í 80. mínútur,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn í kvöld. „Þetta var bara sama upplifunin og í fyrra þegar þær komust 2-0 yfir og svara með marki eftir að við skorum mark. Mér fannst hinsvegar leikmennirnir stíga upp og spila mun betur í seinni hálfleik. Þeim tókst vel að loka á rússneska liðið og skapa sér færi en við þurftum að klára þau.“ Ólafur sagði að það væri ekki hægt að gefa mörk þegar væri komið á þetta stig keppninnar. „Það var svekkjandi og dýrt á þessu stigi keppninnar. Þegar þú ert kominn á þetta stig máttu ekki misstíga þig, hvað þá á heimavelli og gefa svona ódýr mörk.“ Ólafur sagðist hafa tekið jákvæða punkta úr leiknum. „Ef við spilum svona í Rússlandi þá gefum við okkur tækifæri og ég hef fulla trú á því að við munum gera það. Við lærðum það frá síðasta ári að loka á framherjann þeirra en við þurfum að loka betur á aðra leikmenn liðsins.“
Íslenski boltinn Mest lesið Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Íslenski boltinn Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Sport Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Íslenski boltinn ÓL í hættu: Hólmfríður Dóra brotnaði á æfingu Sport Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Fótbolti Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Fótbolti Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Enski boltinn Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Golf Fleiri fréttir Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Þjálfari meistaranna á hálum ís Axel verður áfram hjá Aftureldingu 38 ára Jamie Vardy að skrifa söguna fyrir enska leikmenn á Ítalíu Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH Sólin komin upp á ný hjá Selmu Sól eftir krefjandi ár Isak tæpur og Gakpo frá Freyr ekki hrifinn af „hrokafullum dómara“ Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Breytti um nafn til að „sýna þeim fingurinn“ „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Saka FIFA um okurverð á miðum á HM næsta sumar „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Freyr pirraður eftir rautt spjald á erfiðu kvöldi „Ekki fallegt en mjög sætt engu að síður“ „Að hitta var bara númer eitt, tvö og þrjú“ Sjáðu Albert tryggja Fiorentina sætan sigur Elías á toppnum en Hákon tapaði í Sviss Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Táningur brenndi sögufræga stúku Breiðablik - Shamrock Rovers 3-1 | Sextíu milljónir og fyrsti sigur í höfn Frá Akureyri til Danmerkur Faðmaði þjálfarann sinn til að sýna og sanna samstöðu liðsins Sjá meira