Aron: Þurfum að gíra okkur upp í algjöran djöfulgang

„Við vissum alveg hvað þeir myndu bjóða upp á en gerum hvað eftir annað mistök í því sem við ætluðum að framkvæma. Við vorum hikandi og seinir. Vorum alltaf skrefinu á eftir og þeir refsa okkur fyrir það.“
Þrátt fyrir ýmsar tilraunir þá lagaðist varnarleikurinn ekki neitt. Hann versnaði bara.
„Þeir keyra seinni bylgjuna í bakið á okkur og við erum að mæta þeim allt of aftarlega. Við vorum að reyna að reka þá út en það gekk ekki upp. Svo náum við góðu forskoti en hendum því allt of auðveldlega frá okkur. Það var svolítið mikill æðibunugangur á okkur í hraðaupphlaupunum þá og hendum boltanum of auðveldlega frá okkur.“
Á meðan Aron beið eftir því að varnarleikurinn lagaðist þá skoruðu Hvít-Rússarnir auðveldlega.
„Menn voru hægir og of fáir boltar varðir. Það er rosalega erfitt að eiga við það þegar þeir skora svona auðveldlega,“ segir Aron en er þetta versta varnarframmistaða landsliðsins undir hans stjórn?
„Já, ég myndi segja það.“
Það verður væntanlega ekki mikið sofið hjá þjálfarateyminu í nótt. Nú þarf að undirbúa liðið enn betur fyrir lokaleik mótsins gegn Króatíu.
„Króatarnir munu sjá hvar við erum veikir fyrir og við verðum að gíra okkur upp fyrir algjöran djöfulgang í leiknum gegn þeim.“
Ekki missa af neinu sem gerist á EM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).
Tengdar fréttir

Lexi spilað þrisvar sinnum meira en lagt var upp með
Alexander Petersson hefur spilað 92 mínútur af 120 á EM. Hann átti aðeins að spila um fimmtán mínútur í leik.

Vignir: Við erum í tómu rugli í vörninni
"Þú ættir eiginlega frekar að spyrja mig að því hvað klikkaði ekki,“ segir Vignir Svavarsson niðurlútur við spurningunni klassísku - hvað klikkaði?

Arnór Þór: "Yfirspiluðu okkur“
"Mér líður ömurlega og það var leiðinlegt að klúðra síðasta skotinu hjá mér,“ segir Arnór Þór Gunnarsson, eftir tapið gegn Hvít-Rússum á Evrópumótinu í handknattleik í dag en leikurinn fór 39-38.

Alexander: Við vorum með þennan leik í vasanum
"Það er erfitt að sætta sig við tap þegar maður skorar 38 mörk,“ segir Alexander Petersson en svekkelsið hreinlega lak af honum í leikslok í Spodek-höllinni.

Aron: Ömurlegt að fá á okkur næstum því 40 mörk á móti þessu liði
Aron Pálmarsson var tekin úr umferð stærsta hluta leiksins á móti Hvíta-Rússlandi í dag en sýndi styrk sinn þegar hann slapp úr gæslunni og endaði með 4 mörk og 6 stoðsendingar. Það dugði hinsvegar ekki til að íslenska liðið varð að sætta sig við svekkjandi tap.

Umfjöllun og myndir: Ísland - Hvíta Rússland 38-39 | Varnarleysi í Katowice
Ísland tapaði fyrir Hvít-Rússum, 38-39, í öðrum leik sínum í B-riðli á Evrópumótinu í Póllandi í dag.

Björgvin: „Ég mun ekki eiga annan svona slæman leik“
„Mér líður bara skelfilega,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, eftir tapið gegn Hvít-Rússum á Evrópumótinu í handknattleik í dag en leikurinn fór 39-38. Björgvin varði 11 skot í leiknum.