Tala látinna hækkar eftir sjálfsmorðsprengjuárásina í Pakistan Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. mars 2016 21:57 Fórnarlömbin eru að mestu konur og börn. Vísir/AFP
Minnst 69 eru látnir og 280 særðir eftir sjálfsmorðsprengjuárás í garði í borginni Lahore í Pakistan. Pakistanskir talibanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni og segja að henni hafi verið beint að kristnu fólki. Fjölmennt var í garðinum vegna páskahátíðarinnar. Árásin var gerð á bílastæði við garðinn í þann mund sem margir voru á leið heim. Bílastæðið er rétt við leiksvæði barna en fórnarlömb árásinnar eru að mestu konur og börn. Pakistanskir talibanar í hópi sem nefnist Jaamat-ul-Ahrar lýstu yfir ábyrgð á árásunum. Talsmaður samtakanna sagði að árásin væri skilaboð til Nawaz Sharif forsætisráðherra Pakistan um að samtökin væru komin til að vera í Lahore, einni fjölmennustu borg Pakistan. Þriggja daga sorg hefur verið lýst yfir í Punjab-héraði. Talsmaður héraðsstjórnarinnar segir að gæslulið hafi verið á staðnum þegar árásin var gerð en ekki hafi borist nein viðvörun um að árás væri í vændum. Margir hinna slösuðu eru taldir vera alvarlega særðir og óttast er að tala látina muni hækka enn frekar.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Fleiri fréttir Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Sjá meira