Ruddist inn á völlinn og fékk selfie með Ronaldo | Myndir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. júní 2016 13:00 Alvöru bolur þarna á ferðinni. vísir/epa
Það gekk ekkert upp hjá Cristiano Ronaldo þegar Portúgal og Austurríki gerðu markalaust jafntefli á Parc des Princes í París í F-riðli á EM 2016 í gærkvöldi. Ronaldo reyndi allt hvað hann gat og átti alls 10 skot að marki í leiknum. Real Madrid-maðurinn komst næst því að skora þegar hann skaut í stöng úr vítaspyrnu 12 mínútum fyrir leikslok.Sjá einnig: Ronaldo átt 20 skot á EM án þess að skora Portúgölsku stórstjörnunni tókst þó að gleðja einn aðdáanda sem ruddist inn á völlinn eftir að lokaflautið gall til að fá mynd af sér með goðinu. Ronaldo tók vel í beiðnina, bandaði öryggisvörðum frá og aðdáandinn fékk svokallaða „selfie“. Hæstráðendur í portúgalska knattspyrnusambandinu kunna þessum dreng þó eflaust litlar þakkir fyrir því Portúgalar hafa verið ákærðir af UEFA vegna þessarar uppákomu. Ronaldo hefur átt erfitt uppdráttar á EM, bæði innan vallar sem utan en hann var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín í garð Íslands eftir jafntefli liðanna á þriðjudaginn.Sjá einnig: Hömlulaus þórðargleði: Íslendingar fögnuðu ákaft þegar Ronaldo klúðraði vítinu Portúgalar eru með tvö stig eftir tvo leiki í F-riðli, jafnmörg og Íslendingar sem eru fyrir ofan á fleiri mörkum skoruðum. Ungverjar eru í toppsætinu með fjögur stig og Austurríkismenn reka lestina með aðeins eitt stig.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Sjá meira