Hrafnhildur aftur í undanúrslit | Sjáðu sundið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2016 16:21
Íslenska sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir heldur áfram að standa sig vel á Ólympíuleikunum í Ríó en hún er komin í undanúrslit í 200 metra bringusundinu eftir að hafa náð 10. sæti í undanrásunum. Hrafnhildur Lúthersdóttir kom í mark á tímanum 2:24.43 mínútum en Íslandsmet hennar frá því í maí er 2:22,96 mín. Þetta er önnur greinin á mótinu þar sem Hrafnhildur kemst áfram í undanúslit en Hrafnhildur varð í sjötta sæti í 100 metra bringusundi sem er besti árangur íslenskrar konu á ÓL frá upphafi. Hrafnhildur skrifaði líka söguna í þessu sundi í dag því hún er fyrsta íslenska konan til þess að komast í undanúrslit í tveimur greinum á Ólympíuleikum. 200 metra bringusundið á að vera besta grein Hrafnhildar Lúthersdóttur en hún hefur einnig náð frábærum og sögulegum árangri í 100 metra bringusundi upp á síðkastið. Hrafnhildur varð í 28. sæti í 200 metra bringusundinu á Ólympíuleikunum í London fyrir fjórum árum en hún varð síðan í 9. sæti á HM í Kazan fyrir ári síðan og vann bronsverðlaun í 200 metra bringusundinu á EM í London í maí. Hrafnhildur syndir undanúrslitasund í nótt en það fer ekki fram fyrr en eftir klukkan tvö að íslenskum tíma.Tweets by @VisirSport
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Markvörður Eista meiddur Fótbolti Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sjá meira